ISIS skilgreina sig sem súnníta og var áður fyrr hluti af hryðjuverkasamtökunum al-Qaida. ISIS hefur tekist að vaxa hratt vegna óstöðugs, pólitísks ástands í Sýrlandi og Írak.
Í júní 2014 lýsti hópurinn yfir stofnun íslamsks ríkis á þeim svæðum sem hann hafði náð völdum á. Til að stöðva framsókn ISIS hóf alþjóðlegur herafli undir stjórn Bandaríkjanna, saman með kúrdískum, íröskum og sýrlenskum landherum, loftárásir á ISIS skotmörk í ágúst sama ár. Baráttan gegn ISIS er enn í gangi en hryðjuverkasamtökin hafa misst yfirráð á mörgum svæðum.
Bakgrunnur
Öfgahópurinn ISIS var stofnaður árið 2003 vegna innrásar Bandaríkjamanna og Breta í Írak sama ár. Innrásin var gerð í kjölfar hryðjuverkaárásanna af höndum al-Qaida í Bandaríkjunum 11. september 2001 með það að markmiði að steypa af stóli stjórn Baath-flokksins og forystumann hans, einræðisherrann Saddam Hussein. Bandaríkjamenn töldu sig geta sannað að Íraska ríkisstjórnin ætti gereyðingarvopn og væru í samstarfi við hryðjuverkahópinn al-Qaida.
Innrásin varð til þess að stjórn Saddan Hussein missti völd en stjórnin hafði lengi vel stutt minnihlutahóp súnnímúslíma, sem er 20% af mannfjölda Íraks. Við stjórnarskipti urðu sjítar í meirihluta. Það olli átökum á milli ríkisstjórnarinnar og súnníta því ríkisstjórnin hafði innleitt pólitík sem mismunaði minnihlutahópnum. Á sama tíma fékk ný ríkisstjórn stuðning frá Bandaríkjamönnum sem og sjíamúslíma samfélaginu í Írak. Átökin á milli íraskra stjórnvalda og súnníta, auk hersetu Vesturlanda í Írak, lagði grunninn að ISIS.

Helstu aðilar í átökunum
* Írak - Erfiðleikar eru í Írak vegna pólitísks óróa innanlands og veiks herafla. Írakar hafa því beðið um aðstoð við að hrekja ISIS úr landi.
* Sýrland - Verið er að leggja Sýrland í rúst vegna borgarastyrjaldar á milli Assad-stjórnarinnar og herskárra uppreisnarhópa. ISIS er einn af þessum hópum.
* Kúrdískir hópar - Ýmsir kúrdískir hópar berjast við ISIS á svæðum Kúrda og hafa verið ábyrgir fyrir mikilvægum hernaðarlegum sigrum á ISIS. Kúrdar vilja sjálfstætt ríki og eru að hluta til með sjálfstæði í Norður-Írak.
* Íran - Íranir hafa sent sérsveitir til að styðja við Íraksstjórn.
* Alþjóðlegt bandalag - Bandalagið undir forystu Bandaríkjamanna hefur stutt írakskar og kúrdískar sveitir með loftárásum og herþjálfun síðan 2014. Það hefur einnig gert loftárásir í Sýrlandi.
* Tyrkland. Tyrkir hafa gert loftárásir á bæði kúrdíska hópa og ISIS. Tyrkir hafa áhyggjur af því að staða Kúrda í Írak verði svo sterk að það geti styrkt baráttu tyrkneskra Kúrda fyrir sjálfstæði.
* Rússland - Rússar styðja stjórn Assad og hafa varpað sprengjum á skotmörk ISIS í Sýrlandi.
* Sýrlenska andspyrnan - Frá upphafi stríðsins í Sýrlandi hefur andspyrnan samanstaðið af breiðum hópi fólks sem í upphafi höfðu það sameiginlega markmið að steypa Assad-stjórninni af stóli sem og berjast gegn ISIS. Andspyrnan hefur samanstaðið af hópum eins og Frjálsa sýrlenska hernum (FSA) og hópum tengdum al-Qaida, eins og Jabhat al-Nusra.
Uppgangur ISIS
ISIS á rætur að rekja til alþjóðlegu hryðjuverkasamtakanna al-Qaida og gekk undir nafninu „al-Quida í Írak“. Samtökin voru stofnuð í kjölfarið á hernámi Íraks þar sem Bandaríkin voru í forustuhlutverki.
Eftir að borgarastyrjöldin í Sýrlandi braust út árið 2011 ferðuðust íslamistar frá Írak til Sýrlands til að koma á fót staðbundnum al-Qaida-samtökum þar. Það leiddi til þess að hópurinn Jabhat al-Nusra var stofnaður.
ISIS skilur sig frá al-Qaida
Eftir því sem ISIS og al-Nusra uxu, jukust deilur um það í hvaða átt hóparnir ættu að þróast. ISIS vildi verða sjálfstætt frá al-Qaida á meðan al-Nusra valdi að tengjast miðstjórn al-Qaida opinberlega.
Þetta leiddi til átaka á milli ISIS á aðra höndina og al-Nusra og al-Qaida á hina. Í kjölfarið tók ISIS yfir svæði í austanverðu Sýrlandi sem áður höfðu verið undir stjórn al-Nusra. Á sama tíma tókst ISIS að ráða til sín marga fyrrverandi liðsmenn al-Nusra.
ISIS deilir mikið af sömu hugmyndafræði og al-Qaida en beitir öðrum aðferðum til að ná markmiðum sínum. IS setur stofnun íslamsks ríkis í forgang, samhliða baráttunni gegn óvininum. Hópurinn lítur á íslamskt ríki ekki bara sem markmið, heldur einnig sem tæki. IS hefur einnig fjandsamlegri afstöðu gagnvart sjíamúslimum en al-Qaida.

Baráttan um landsvæði
Árið 2014 tók ISIS stjórnina á landsvæðum í Írak og Sýrlandi. Í lok árs var ISIS búið að ná völdum á gríðarlega stóru landsvæði, frá Aleppó í norð-vestur Sýrlandi til mið-Íraks, aðeins nokkra kílómetra frá Bagdad.
ISIS í Sýrlandi
Stór hluti þessa landsvæða sem ISIS tók yfir í Sýrlandi var á þeim tímapunkti undir stjórn sýrlensku andspyrnunnar, ekki sýrlenskra stjórnvalda. ISIS nýtti sér öngþveitisástandið sem fylgdi borgarastyrjöldinni í Sýrlandi með að ná yfir landsvæðunum en einnig nutu samtökin góðs af stuðningi Saudí-Arabíu, Qatar, Bandaríkjunum og fleiri landa við uppreisnarmenn í baráttunni gegn stjórn Assad. Mikið af þeim vopnum sem send voru til Sýrlands enduðu í höndum ISIS.
ISIS í Írak
Íraskir heraflar hafa skort nægan viðnámsþrótt gegn ISIS. Í ágústmánuði árið 2014 yfirtók ISIS vatnsmesta uppistöðulóni Íraks, Mosul-lónið, helsta auðlind landsins. Lónið getur einnig nýst sem vopn; annað hvort með lokun á vatnsstreymi, sem skapar þar af leiðandi þurrka á suðurlandinu eða með því að opna flóðgáttirnar sem myndi koma af stað skelfilegri flóðbylgju.
Daginn eftir að Mosul-lónið komst í hendur ISIS hófu Bandaríkjamenn að varpa sprengjum á skotmörk ISIS á svæðinu. Það varð til þess að ISIS missti vald yfir vatnskerfinu og síðan þá hefur meiri áhersla verið lögð á baráttuna gegn ISIS en gegn stjórn Assad.

Með sprengingunum sýndu Bandaríkjamenn stuðning sinn við íraskar-kúrdískar sveitir og landsheri hryðjuverkaandstæðinga sem í sameiningu náðu stjórn yfir uppistöðulóninu. Árásir út lofti hafa haldið áfram, þó ekki á landi, því Bandaríkjamenn vilja ekki senda eigin landher í baráttuna við ISIS. Landið hefur engu að síður umtalsverðan fjölda hermanna staðsetta í Írak.
* Meira um baráttu Kúrda fyrir sjálfstæði hér
Hugmyndafræði ISIS: Hið nýja kalífat
Átökin við ISIS snúast aðallega um baráttu um völd, landsvæði og hugmyndafræði. Þegar ISIS tilkynnti að það hefði stofnað íslamskt ríki tilkynnti það jafnframt að hópurinn væri nýtt kalífat. Þetta er hugtak sem hefur mikið táknrænt gildi í hinum múslímska heimi. Hin mismunandi múslímsku veldi sem hafa orðið til í gegnum mannkynssöguna er oft lýst sem kalífötum. Kalífati er stjórnað af kalífa sem upphaflega var talinn vera arftaki Múhameðs spámanns og talinn leiðtogi allra múslíma á jörðinni. Kalífi er með pólitískt og trúarlegt vald og er háður íslamskri löggjöf, sjaría. Hugmyndafræði ISIS reynir einnig að endurheimta það sem lýst er sem horfnu, íslömsku blómaskeiði, gullinni fortíð fyrir tíma vestrænnar heimsvaldastefnu og spilltum leiðtogum.
ISIS kveðst hafa réttmæti sem kalífat, sem sannað er með hernaðarlegri velgengni þeirra. Leiðtogi ISIS, Abu Bakr al-Baghdadi, getur á þann hátt kallað sig sannan kalífa svo lengi sem ISIS tekur hernarðarlegum framförum. Það eru samt tiltölulega fáir múslímar í heiminum sem viðurkenna Íslamska ríkið sem kalífat og al-Baghdadi sem sannan kalífa.

Hin róttæka hugmyndafræði getur verið gagnleg til útskýringar á því grimma ofbeldi sem ISIS beitir. Grimmdin er oft sýnd opinberlega með táknrænu ofbeldi svo sem þegar menn eru hálsgöggnir eða krossfestir. Fyrir utan að vilja valda hræðslu getur slíkt upphafið ofbeldi skýrst af hugmyndafræði ISIS, hugmyndinni að ofurvald og hernaðarsigrar séu það sem tengist viðurkenningu guðs. Á þann hátt getur ofbeldið litið út sem einhvers konar sönnun þess að Íslamska ríkið sé hið sanna kalífat með samþykki guðs.
ISIS fær stuðning erlendis frá
Hugmyndafræðileg sannfæring er líka ein af mörgum mögulegum ástæðum þess að stríðsmenn frá öðrum löndum en Írak og Sýrlandi taka þátt í átökunum. Leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, áætlaði í september árið 2014 að fjöldi ISIS-stríðsmanna í Sýrlandi og Írak væri á milli 20.000 - 31.500. Mikilvægustu liðsöflunarsvæðin utan vestur-Evrópu og Mið-Austurlönd eru löndin á Balkanskaganum og ríkin sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum.
Þónokkrir ríkisborgarar Norðurlandanna hafa genið til liðs við ISIS. Ekki er vitað með vissu hvort einhver íslendingur hafi barist með ISIS en samkvæmt tölum frá janúar 2015 er talið að um 70 norskir ríkisborgarar hafi barist með ISIS. Varnarmálaháskólinn í Stokkhólmi gerði einnig rannsókn árið 2017 þar sem fram kom að um 300 svíar höfðu tengsl við hryðjuverkahópa í Írak og Sýralandi 2012-2016.
Boko Haram, íslamskur hryðjuverkahópur í Nígeríu, lýsti yfir hollustu sinni við ISIS í mars 2015. ISIS hefur síðan lokið lofsorði á yfilýsingu Boko Haram um hollustu við samtökin sem hafa gefið út að kalífatið hafi stækkað um eitt hérað í Vestur-Afríku. ISIS hefur einnig framið hryðjuverkaárásir fyrir utan aðalsvæði sitt í Mið-Austurlöndum, m.a. í Líbíu og Jemen.
Tölfræði yfir fjölda erlendra ISIS meðlima

ISIS styður hryðjuverkaárásir í Evrópu
ISIS hefur sagts hafa borið ábyrgð á mörgum hryðjuverkum utan Mið-Austurlanda, meðal annars í Evrópu. Stærsta hryðjuverkaárásin í Evrópu varð föstudaginn 13. nóvember 2015 í París í Frakklandi þar sem 130 manns létu lífið. Rökstuðningur ISIS er sagður vera þátttaka Frakka í stríðinu í Sýrlandi og Írak. Árásin leiddi til aukins ótta og aukinnar öryggisráðstöfunar í Evrópu auk þess sem Frakkar juku við sprengjuárásir sínar á skotmörk ISIS í Mið-Austurlöndum.
Óljóst er hvaða hlutverk stjórnendur ISIS hafi haft í hryðjuverkaárásunum í París. Slík árás er engu að síður í samræmi við stefnu og hugmyndafræði hryðjuverkahópsins sem felst meðal annars í því að auka spennuna í Evrópu á milli múslíma og annarra. ISIS vonar að hryðjuverk auki vantraust og mismunun gegn múslímum í Evrópu því samkvæmt þeim eru Vesturlönd virkilega á móti múslimum og Íslam. Það að múslimar og aðrir lifi í sátt og samlindi fer gegn hugmyndafræði ISIS. Hinsvegar, ef múslimar upplifi að þeim sé ógnað í Evrópu, er líklegra að þeir gangi til liðs við hryðjuverkasamtökin.

Alvarlegt ástand fyrir óbreytta borgara
Átökin við ISIS hafa leitt til gríðarlegrar áraunar fyrir óbreytta borgara bæði í Sýrlandi og Írak. Borgarastyrjöld var í Sýrlandi þegar ISIS náði fótfestu þar árið 2014 en aðeins nokkrum árum seinna, í mars 2019, lýstu Lýðræðissveitir Sýrlands (SDF) því yfir að síðasta vígi ISIS í Sýrlandi væri fallið. Síðan þá hefur Íslamska ríkið haldið áfram hryðjuverkaárásum gegn heimamönnum, en þó í mun minna mæli en áður.