Hvað er Globalis?

Markmið Globalis er að miðla, einkum með sjónrænum hætti, upplýsingum um líkindi og ójöfnuð í samfélögum heimsins og hvernig við höfum áhrif á líf á jörðinni.

Við viljum auðvelda fólki að skilja heiminn í kringum sig og varpa ljósi á bæði mun og tengsl milli landa og samfélaga með því að nýta tölur, kort, staðreyndir og önnur gögn. Globalis er stafrænn valkostur við hefðbundin veggkort í skólastofum, sem og töflur í skýrslum og upplýsingar í alfræðiritum og samfélagsatlasum á prenti.

Notendur geta nýtt lönd sem útgangspunkt til að nálgast upplýsingar um ólík málefni. Auk þess er efnið skipulagt í þemu sem veita heildstæða sýn á hvert viðfangsefni.

Fyrir hvern er Globalis?

Globalis nýtist í fjölmörgum námsgreinum, svo sem samfélagsfræði, náttúrufræði, stærðfræði (tölfræði) og upplýsingatækni. Vefurinn hentar einnig vel í þverfagleg verkefni og getur þjónað sem gagnlegt uppflettirit þegar unnið er með ákveðin þemu. Notkun Globalis er einföld og aðgengileg og krefst ekki sérstakrar tölvukunnáttu, hvorki af hálfu kennara né nemenda.

Reynsla okkar sýnir að nemendum finnst bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að vinna með kort og önnur sjónræn verkfæri. Þar gefst tækifæri til að skoða breytingar á heimsvísu, kafa dýpra í einstök lönd og bera saman tölulegar upplýsingar milli landa.

Hver stendur að baki Globalis?

Globalis var þróað af Félagi Sameinuðu þjóðanna í Noregi og þýtt á íslensku af Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Globalis hefur einnig verið þýtt á dönsku, sænsku, og finnsku.

Gæðatrygging

Globalis er stafrænt alfræðirit Félaga Sameinuðu þjóðanna um þróun heimsins, átök og alþjóðleg málefni. Til að tryggja gæði og trúverðugleika alls efnis sem birt er á Globalis vinnum við eftir skýrum gæðaviðmiðum.

Við störfum í nánu samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna í Noregi, sem þróaði upprunalega vefinn og ber ábyrgð á stórum hluta gagnasöfnunar og áframhaldandi þróunar. Á Íslandi er efnið aðlagað að íslenskum notendum, þar á meðal kennurum, nemendum og öðrum sem vilja öðlast betri skilning á heiminum.

Allar greinar og tölfræðigögn á Globalis byggja á áreiðanlegum og alþjóðlega viðurkenndum heimildum, svo sem Alþjóðabankanum og stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Þessar heimildir veita uppfærðar upplýsingar og greiningar sem gera kleift að varpa ljósi á þróun heimsins á traustum grunni. Við tilgreinum ávallt uppruna gagna svo notendur geti séð hvaðan upplýsingarnar koma.

Til að tryggja að efnið sé meira en einungis tölur leitum við einnig til sérfræðinga sem tengjast Félagi Sameinuðu þjóðanna. Þar á meðal eru fyrrverandi starfsmenn SÞ, diplómatar og aðrir sérfræðingar með djúpa þekkingu á starfi samtakanna, sem koma að faglegu mati á efninu. Þeir leggja mat á hvort efnið sé yfirgripsmikið, hlutlægt og í samræmi við nýjustu þróun í heiminum.

Auk þess vinnum við stöðugt að því að bæta Globalis enn frekar. Við söfnum endurgjöf frá notendum, sérstaklega kennurum og nemendum, til að þróa áfram bæði efni og virkni vefsins. Markmið okkar er að Globalis sé notendavænt, uppfært og trúverðugt verkfæri sem styður við kennslu, miðlun upplýsinga og skilning á alþjóðlegum samhengi.

Með Globalis viljum við skapa þekkingargrunn sem allir geta treyst, hvort sem um er að ræða nemendur, kennara eða aðra sem hafa áhuga á heiminum. Gæðatrygging okkar byggir því á samstarfi, traustum heimildum og sterkri fagmennsku.

Persónuvernd og Globalis

Félag Sameinuðu þjóðanna þýðir hluta af norska vefnum FN.no yfir á íslensku, þar á meðal upplýsingar um lönd, þemu, átök og tölfræði. Það er Félag Sameinuðu þjóðanna í Noregi (kennitala 971274859) sem ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga fari fram í samræmi við gildandi lög, bæði á FN.no og á íslensku útgáfunni Globalis.

Á Globalis er hægt að skrá sig á póstlista Félags Sameinuðu þjóðanna, en að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir að notendur veiti persónuupplýsingar í gegnum vefinn.

Við gerum allar IP-tölur nafnlausar og engar vafrakökur gera okkur kleift að tengja notkun vefsins við einstaklinga. Gögn sem tengjast vafrakökum eru sjálfkrafa eytt 26 mánuðum eftir skráningu.

Globalis notar þó Google Analytics til að greina notkun vefsins. Slík greining er mikilvægur hluti af því að bæta vefinn og þjónustu við notendur. Meðal annars er safnað upplýsingum um hvaða síður eru mest heimsóttar, hvaðan notendur koma, hversu lengi þeir dvelja á síðunni og fjölda heimsókna.

Upplýsingar sem Google Analytics safnar eru vistaðar á netþjónum Google í Bandaríkjunum og falla undir persónuverndarstefnu Google.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Hvað er Félag Sameinuðu þjóðanna?

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi eru frjáls félagasamtök (NGO) sem vinna að því að efla þekkingu, umræðu og þátttöku í alþjóðamálum, með sérstaka áherslu á starf og markmið Sameinuðu þjóðanna.

Félagið er bæði stuðningsaðili og gagnrýninn vettvangur í tengslum við Sameinuðu þjóðirnar. Það leitast við að auka skilning á hlutverki þeirra, á sama tíma og það hvetur til upplýstrar umræðu og gagnrýnnar nálgunar.

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi starfar á landsvísu og alþjóðlegum vettvangi í samstarfi við almenning, stjórnvöld, stofnanir, önnur frjáls félagasamtök og systurfélög sín innan alþjóðahreyfingar Sameinuðu þjóðanna (WFUNA). Meðal helstu áherslna eru að:

  • efla lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum á Íslandi og á heimsvísu

  • stuðla að friði og öryggi á alþjóðavettvangi

  • efla jafnrétti og bæta stöðu jaðarsettra og viðkvæmra hópa

  • stuðla að sjálfbærri þróun — félagslega, efnahagslega og umhverfislega

  • auka þekkingu á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna

Markmið félagsins er að skapa vettvang fyrir fræðslu, umræðu og þátttöku þar sem einstaklingar, sérstaklega ungt fólk, geta tekið virkan þátt í að móta réttlátari og sjálfbærari heim.

UNESCO-skólar

UNESCO hefur starfrækt samstarfsnet skóla á alþjóðavísu frá árinu 1953 undir nafninu UNESCO Associated schools project network (ASPnet). Þeir eru nú um 10.000 talsins og starfa í 180 löndum. Skólarnir eru ýmist á leik-, grunn– og framhaldsskólastigi.

UNESCO–verkefni auka fjölbreytni í kennsluaðferðum og þekkingu nemenda á málefnum Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmiðunum. Verkefnin eru þverfagleg og geta því nýst í ýmsum kennslustundum. Þau passa vel inn í grunnþætti aðalnámskráa leik-, grunn- og framhaldsskóla og hafa hagnýtt gildi.

Félag Sameinuðu þjóðanna fer fyrir skólanetinu á Íslandi í samstarfi við Íslensku UNESCO–nefndina. Verkefnið er styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Í dag eru 27 íslenskir skólar þátttakendur í verkefninu. 

Lestu meira hér.

Fréttabréf og póstlisti

Með því að skrá þig á póstlistann okkar færðu fréttir frá Félagi Sameinuðu þjóðanna, boð á viðburði og fleira áhugavert efni. Skrá hér.