Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Tókío
Þjóðernishópar: Japanir 98%, kóreubúar og kínverjar 1%, aðrir 1%
Tungumál: Japanska
Trúarbrögð: Shinto og búddismi 84%, aðrir/óskilgreint/ekkert 16%
Stjórnarform: Stjórnarskrárbundin konungsstjórn
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 45 573 PPP$

Landafræði

Japan samanstendur af nokkur þúsund eyjum og eru flestar þeirra litlar og óbyggðar. Flestir íbúanna búa á fjórum stærstu eyjunum. Tveir þriðju hlutar af landsvæði Japans eru þaktir þykkum skógi og fjalllendi sem veldur því að aðeins mjög lítill hluti Japans er íbúahæfur og með ræktanlegt land.

Landið liggur á svæði sem er mjög virkt jarðskjálfta- og eldfjallasvæði og hefur að geyma einn tíunda af virkustu eldfjöllum heims. Landið verður fyrir áhrifum tíðra jarðskjálfta og smærri fljóðbylgja. Í Japan er temprað monsoon loftslag og er augljós munur á úrkomu og hitastigi á milli árstíða.

Það er mikill munur á hitastigi í landinu, nyrst eru kaldir og vindasamir vetrar en syðst er nánast suðrænt loftslag með jafnt hitastig allt árið. Hröð iðnvæðing hefur haft mikil áhrif á umhverfið í Japan, í stærstu borgunum eru loftgæðin helsta vandamálið. Einnig er mikið af fersku vatni mengað vegna útblásturs frá stóriðju.

Í mars 2011 upplifði Japan versta jarðskjálfta í sögu landsins, á eftir fylgdi svo harkalegur tsunami (skjálftaflóðbylgja) sem olli miklu tjóni meðfram norðaustur ströndinni.

Saga

Um 300 árum f.Kr byrjuðu fyrstu tilraunirnar til þess að mynda ríki á japönsku eyjunum, eftir að innflytjendur frá kínverska og kóreska meginlandinu höfðu hafið hrísgrjónaræktun og málmsmíði á eyjunum. Í kringum árið 600 stækkaði Heian ríkið áfram með Kyoto sem höfuðborg og með aðsetur keisarans.

Á 12. öld eða í kringum 1100 byrjuðu flokkar stríðsmanna að auka vald sitt og í kringum 1200 var keisarinn í raun aðeins táknræn mynd, en héruðunum var stjórnað af herforingjum. Eftir röð styrjalda var núverandi Japan sameinað í eitt ríki í kringum 1600. Næstu 250 árin var landið meira og minna lokað fyrir umheiminum undir stjórn Tokugawa.

Á fyrri hluta 19. aldar byrjaði Japan að eiga samskipti við önnur lönd á ný, eftir að amerísk herskip þvinguðu sér inn í hafnir til þess að stunda viðskipti. Með því að opna landið fyrir umheiminum var valdið aftur fært til keisarans, sem hafði frumkvæði af miklum umbótum og nútímavæðingu á öllum sviðum samfélagsins.

Á stuttum tíma varð Japan eitt af voldugustu löndum í A-Asíu. Í seinni heimsstyrjöldinni var Japan í tapliðinu og árið 1945 var kjarnorkusprengjum varpað á japönsku borgirnar Nagasaki og Hiroshima. Þetta er eina skiptið sem kjarnorkusprengjur hafa verið notaðar í bardaga. Eftir margra ára enduruppbyggingu er landið aftur orðið eitt af þeim mikilvægustu í A-Asíu.

Vistfræðileg fótspor

9 9 7

2,7

jarðarkúlur Japan

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Japan, þá þyrftum við 2,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Í dag gegnir Japan lykilhlutverki í alþjóðlegum og svæðisbundnum stjórnmálum og gegnir mikilvægu hlutverki í tengslum við nálæg lönd eins og Kína og Norður-Kóreu. Landinu er enn stjórnað með stjórnarskrá sem er innblásin af vestrænum áhrifum og var skrifuð af sigurvegurum seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1947. Keisari er formlegur þjóðhöfðingi ríkisins en hið raunverulega vald er í höndum forsætisráðherra sem myndar ríkisstjórn á grundvelli reglubundinna kosninga.

Eftir stríð hefur frjálslynd íhaldsstefna (Liberal Democratic Party, LDP) verið ríkjandi. Kosningarnar 2009 leiddu til breytinga í Japan og eftir næstum 50 ár í ríkisstjórn þurftu LDP að láta ríkisvaldið í hendur demókrataflokksins (Democratic Party of Japan, DPJ). Vorið 2011 upplifði landið miklar náttúruhamfarir þegar sterkur jarðskjálfti og flóðbylgja eyðilögðu stóran hluta af strandsvæði landsins. Þúsundir manna fórust og hálf milljón heimila eyðilögðust. Skemmdir urðu á kjarnorkuveri og urðu stór svæði óbyggileg og menguðust matvælabirgðir. Sjálfsvígshlutfall í Japan er meðal hæstu í heimi.

Lífskjör

18

21 / 169

HDI-lífskjör Japan

Japan er númer 21 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Japan er eitt af stærstu og mikilvægustu hagkerfunum í heiminum og er leiðandi á mörgum sviðum í rafeinda- og upplýsingatækni (Information technology). Landið endurreisti iðnaðargetu sína á mjög stuttum tíma eftir hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar og hefur vöxturinn verið gríðarlegur frá árinu 1960. Hámenntaðir íbúar, pólitískur stöðugleiki og iðnaðaruppbyggingin sem átti sér stað áður en stríðið skall á gerði þessa uppbyggingu mögulega á stuttum tíma.

Japan hefur ekki markaðshagkerfi í hefðbundnum skilningi, þar sem tengsl milli atvinnulífs og stjórnvalda er sérstaklega náin. Yfirvöld leggja fram reglugerðir og gera ráðstafanir í nánu sambandi við helstu fyrirtæki landsins til að tryggja stöðuga þróun. Landið varð illa úti í fjármálakreppunni í Asíu árið 1990, en reis aftur upp í kringum 2000. Í dag glímir landið við sívaxandi skuldir þjóðarbúsins. Færra fólk er á atvinnumarkaði og langlífi fólks krefst nýs lífeyrissjóðakerfis.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Japan fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

7 10 10 10 10 10 10 10 10 10

0,3

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Japan

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

12

45 573

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Japan

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

18

21 / 169

HDI-lífskjör Japan

Japan er númer 21 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

10 10 10 10 10 10 10 10 10 9

9,9

af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Japan

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 10 8

9,8

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Japan

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

1

0,083

GII-vísitala í Japan

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

9 9 7

2,7

jarðarkúlur Japan

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Japan, þá þyrftum við 2,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

10 10 10 10 10 10 10 10 0

8,03

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Japan

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

123 294 513

Fólksfjöldi Japan

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

10 3

1,3

Fæðingartíðni Japan

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2

2

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Japan

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

Tölfræði um ólæsi

Kort af Japan