Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Pretoría
Þjóðernishópar: Svartir afríkubúar 79%, hvítir 9.6%, aðrir 11.4% (2001)
Túngumál: IsiZulu, isixhosa, afrikaans, sepedi, enska, setswana, sesotho, xitsonga (2001)
Trúarbrögð: Síonistar 11.1%, pinsekristne/karismatisk kristne 8.2%, kaþólikkar 7.1%, meþódistar 6.8%, „Dutch Reformed“ 6.7%, biskupakirkjan 3.8%, múslimar 1.5%, aðrir kristnir hópar 36%, aðrir/óskilgreint 18.8% (2001)
Stjórnarform: Lýðveldi
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 15 905 PPP$

Landafræði

Suður-Afríka er syðst á meginlandi Afríku. Indlandshaf er í austri og Atlantshafið í vestri. Heittemprað rakt loftslag er á austurströnd landsins, en á vesturströndinni er þurrara og tempraðra loftslag. Landslagið mótast af gríðarstórri hásléttu, en í austanverðu landinu eru Drekafjöll. Fjöllin teygja sig í boga frá landamærasvæðinu í norðaustri, í vestur að Góðrarvonarhöfða. Meðfram strandlengjunni er frjósöm landræma. Í Suður-Afríku er fjölbreytt dýra- og plöntulíf og stór landsvæði eru friðlýst sem þjóðgarðar. Skortur á vatni er stærsta umhverfisvandamál Suður-Afríku. Eftirspurnin eykst sífellt en vatnsbirgðir eru knappar. Mengun í formi súrs regns veldur jarðvegseyðingu og eyðimerkurmyndun.

Saga

Nokkrar af elstu fornleifum heims hafa fundist í Suður-Afríku. Hellaristur er hægt að rekja aftur til 20.000 ára f.Kr. Talið er að þessar teikningar hafi verið gerðar af San-fólkinu sem er elsti núlifandi ættbálkur í Suður-Afríku. Saga Suður-Afríku er hrottaleg. Nútímasaga landsins hefst í kringum 1652 þegar Hollendingar stofnuðu Höfðanýlendu, sem var birgðastöð sem tengdist skipaflutningum á milli Evrópu og Asíu. Nýlendustefnan leiddi til þess að næstum öllum frumbyggjum var útrýmt eða þeir gerðir að þrælum Evrópumanna. Bretland hernam seinna Höfðanýlendu og bannaði þrælahald, sem leiddi til þess að Hollendingar fluttust að til að stofna eigin ríki í landinu. Sambandið á milli evrópskra nýlenduherra og svörtu íbúa landsins einkenndist af kúgun og þrælahaldi. Að auki var alltaf rígur á milli Englendinga og Hollendinga. Stærstur hluti af nútímasögu Suður-Afríku hefur einkennst af mismunun og kynþáttakúgun. Þjóðarflokkur hvítra (NP) samþykkti um árabil fjölda laga sem kerfisbundið kúgaði og útilokuðu svarta meirihlutann í landinu frá pólitískum, félagslegum og efnahagslegum réttindum. Þetta kerfi var kallað aðskilnaðarstefna og var í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar aflagt eftir mikinn alþjóðlegan þrýsting. Þá var áhrifamesti stjórnmálamaður stjórnarandstöðunnar Nelson Mandela leystur úr haldi eftir 28 ára fangelsisvist. Árið 1994 gátu Nelson Mandela og Afríska þjóðarráðið (ANC) lýst því yfir að þau hefðu unnið fyrstu frjálsu lýðræðislegu kosningarnar í landinu. Barátta svartra fyrir jafnri stöðu í samfélaginu hafði að lokum náð fram að ganga, og hin opinbera mismunun var aflögð.

Vistfræðileg fótspor

9 9 2

2,2

jarðarkúlur Suður-Afríka

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Suður-Afríka, þá þyrftum við 2,2 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Afríska þjóðarráðið er enn þann dag í dag við stórnvölinn í Suður-Afríku. Eftir að Mandela dró sig út úr stjórnmálum hafa ásakanir um spillingu herjað á nýja stjórnmálaleiðtoga og leitt til klofningar í ANC. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn, Democratic Alliance (DA), hefur aukið fylgi sitt, en er enn ekki raunhæfur kostur í stað Afríska þjóðarráðsins. Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan sé ekki lengur við lýði í stjórnmálum í reynd er arfleifðin frá stjórnarfyrirkomulaginu mjög sýnileg. Það er enn mikill félagslegur og efnahagslegur mismunur á milli svartra og hvítra, og að auki er glæpatíðni há og mikil fátækt. Atvinnuleysi er eitt af stærstu verkefnunum stjórnvalda þar sem 25,5 prósent af íbúum er án vinnu. Áætlað er að 21,5 prósent af fullorðnum í Suður-Afríku sé smitaður af HIV/AIDS. Hægt gengur að dreifa lyfjum og margir hafa ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu. Treatment Action Campaign (TAC) er einn áhrifaríkasti aðili í baráttunni gegn HIV/AIDS og hefur breytt stefnu landsins á þessu sviði.

Lífskjör

14

96 / 169

HDI-lífskjör Suður-Afríka

Suður-Afríka er númer 96 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

ANC hefur frá því árið 1996 leitt nýfrjálsa efnahagsstefnu með það að markmiði að auka umsvif efnahagskerfisins og auka atvinnu. Svört miðstétt landsins fer sífellt stækkandi og fleiri hafa atvinnu og menntun. Efnahagslegur vöxtur hefur leitt til aukinna fjárfestinga í opinbera geiranum og hraðari uppbyggingar. Suður-Afríka hefur ávallt verið efnahagsmiðstöð Afríku. Í dag standa gull og eðalsteinar undir helmingi af útflutningi landsins, og landið er annar stærsti framleiðandi heims af málmunum mangan, platínu og krómi. Þrátt fyrir að efnahagskerfi Suður-Afríku þokist upp á við, hefur vöxturinn ekki verið nægur til að bæta lífsskilyrði þeirra allra fátækustu. Um það bil 11 prósent af íbúum landsins lifir undir fátæktarmörkum. Heimsmeistaramótið í knattspyrnu verður haldið í Suður-Afríku árið 2010. Aukin athygli og velheppnað heimsmeistaramót mun hafa mikla þýðingu fyrir landið efnahagslega, pólitískt og félagslega.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Suður-Afríka fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

0 0 0 10 10 10 10 10 10 10

3,0

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Suður-Afríka

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

4

15 905

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Suður-Afríka

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

14

96 / 169

HDI-lífskjör Suður-Afríka

Suður-Afríka er númer 96 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

3 10 10 10 10 10 10 10 10 10

0,7

Hlutfall vannærðra íbúa Suður-Afríka

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 7 0

8,7

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Suður-Afríka

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

4

0,405

GII-vísitala í Suður-Afríka

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

9 9 2

2,2

jarðarkúlur Suður-Afríka

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Suður-Afríka, þá þyrftum við 2,2 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

10 10 10 10 10 10 7

6,69

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Suður-Afríka

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

60 414 495

Fólksfjöldi Suður-Afríka

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33

33

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Suður-Afríka

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

10 10 10 10 10 10 10 10 10 0

9,0

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Suður-Afríka

Tölfræði um ólæsi

Kort af Suður-Afríka