Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Höfuðborg: | Windhoek |
Þjóðarhópar: | Ovambo 50%, kavango 9%, herero 7%, damara 7%, nama 5%, caprivi 4%, baster 2%, tswana 0,5%, hvítir 6%, blandaðir/aðrir 7,5% |
Tungumál: | Enska, afríkans, þýska, ýmis ættbálkamál |
Trúarbrögð: | Kristnir 80%, aðrir/óskilgreint/trúleysingjar 20% |
Stjórnarform: | Lýðveldi |
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 11 206 PPP$ |
Landafræði
Namibía er stórt land með 257,5 kílómetra langa strandlengju. Namibíu-eyðimörkin liggur á mjóu belti meðfram allri strandlengjunni. Lengra í austri breytist landslagið í hásléttu. Nokkrar ár liggja þvert í gegnum þurrkasvæðin og með fram þeim eru frjósöm svæði þar sem meirihluti íbúanna býr. Við landamæri Botsvana og Namibíu í austri tekur við hin gríðarstóra Kalahari-eyðimörk og í norðurhlutanum eru víðlendar sléttur með gróskumiklum gróðri. Meira en einn þriðji hluti Namibíu er eyðimörk, þar sem hiti er hár og úrkoma lítil. Oft er mikill þurrkur í landinu og geta liðið margir mánuðir án regns. Skortur á drykkjarvatni er eitt af stærstu umhverfisvandamálum landsins. Hið þurra loftslag gerir það einnig að verkum að frjósamur jarðvegur þar sem hann er, er mjög berskjaldaður fyrir rýrnun eða eyðingu.
Saga
Þar til fyrir um það bil 1000 árum bjó hirðingjaættbálkurinn San-fólkið í Namibíu. Á elleftu öld hófu aðrir ættbálkar, eins og khoikhoi og ólíkir bantu ættflokkar, að koma sér fyrir á svæðinu og nokkur lítil konungdæmi voru stofnuð meðfram ánum. Portúgalskir sjómenn komu oft að landi á 15. öld, en héldu sig við strandlengjuna. Það var ekki fyrr en á 19. öld að Namibía varð fyrir utanaðkomandi áhrifum. Búar á flótta undan breskri stjórn í Höfðanýlendu (í dag Suður-Afríka), kaupmenn og trúboðar námu land á svæðinu og notuðu í mörgum tilfellum innfædda sem þræla. Við undirritun Berlínarsáttmálans árið 1885 var svæðið gert að þýskri nýlendu og fékk nafnið Þýska Suðvestur-Afríka. Nýlenduherrarnir deildu flestum auðlindum landsins á milli hinna rúmlega 10 þúsund þýsku innflytjenda sem þar voru, sem leiddi til þess að herero- og nama-ættbálkarnir gerðu uppreisn. Þjóðverjar tóku hart á uppreisninni og börðu hana niður. Meira en 65 þúsund hereoar og 20 þúsund namar voru drepnir. Í fyrri heimsstyrjöldinni var Namibía hernumin af Suður-Afríku. Namibía fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku árið 1990.
Vistfræðileg fótspor
1,5
jarðarkúlur Namibía
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Namibía, þá þyrftum við 1,5 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Forsetinn er æðsti valdamaður í Namibíu. Hann fer fyrir ríkisstjórninni og er æðsti yfirmaður ríkisins og hersins. Þingið og forsetinn eru kjörin til fimm ára í senn. Í namibískum stjórnmálum ber mikið á marxísku frelsishreyfingunni SWAPO, sem barðist gegn aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku í landinu frá 1966 til 1989. Vinsældir SWAPO hafa dvínað vegna aðildar þeirra að borgarastyrjöldunum í Angóla og Austur-Kongó, en hreyfingin hefur þó enn hreinan meirihluta á þingi. Líkt og nágrannalöndin í sunnanverðri Afríku, berst Namibía við að endurúthluta landsvæðum sem voru í eigu hvíta minnihlutans á nýlendutímanum. Alnæmisfaraldurinn hefur einnig haft gífurlegar afleiðingar fyrir landið og er misskipting tekna í landinu sú mesta sem gerist í heiminum.
Lífskjör
126 / 169
HDI-lífskjör Namibía
Namibía er númer 126 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Í Namibíu er mikið af jarðefna- og sjávarauðlindum, sem eru undirstaða efnahags landsins. Landið er í fararbroddi við vinnslu vandaðra demanta, silfurs og sinks. Einungis þrjú prósent vinnuaflsins vinnur innan jarðefnaiðnaðarins og er tekjunum frá þeim iðnaði skipt mjög ójafnt milli íbúa landsins. Þar eru skörp skil á milli hvítra og svartra. Stærstur hluti fátæku svörtu íbúanna af landsbyggðinni býr við sjálfsþurftarbúskap. Undanfarin ár hefur ríkisstjórnin gert tilraunir til að fá erlenda fjárfesta til landsins og komið hefur verið á fót textíliðnaði.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Namibía fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
2,1
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Namibía
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
11 206
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Namibía
Lífskjör
126 / 169
HDI-lífskjör Namibía
Namibía er númer 126 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
2,0
Hlutfall vannærðra íbúa Namibía
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
Gögn vantar
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
9,0
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Namibía
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,445
GII-vísitala í Namibía
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
1,5
jarðarkúlur Namibía
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Namibía, þá þyrftum við 1,5 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
1,59
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Namibía
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Namibía
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
3,2
Fæðingartíðni Namibía
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
39
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Namibía
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
9,2
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Namibía