Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Katmandu
Þjódernishópar: Chhettri 15.5%, brahman-hill 12.5%, magar 7%, tharu 6.6%, tamang 5.5%, newar 5.4%, kami 3.9%, yadav 3.9%, aðrir/óskilgreint 39.7% (2001)
Tungumál: Nepalska, maithali, bhojpuri, tharu, tamang, newar, magar, awadhi (2001)
Trúarbrögð: Hindúar 80.6%, búddistar 10.7%, múslimar 4.2%, kirantar 3.6%, aðrir/óskilgreint/trúleysingjar 0.9% (2001)
Sjtórnarform: Lýðveldi
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 4 725 PPP$

Landafræði

Stór hluti Himalajafjalla er í Nepal, þar á meðal Everest, hæsta fjall heims. Í landinu eru mörg önnur fjöll sem ná yfir 8000 metra, en um þrír fjórðu hlutar Nepals er fjalllendi. Slétturnar í suðri eru aðallega notaðar til landbúnaðar, það sama gildir um marga frjósama dali í landinu. Loftslagið er breytilegt eftir hæð yfir sjávarmáli: Á láglendinu er heittemprað loftslag en í fjöllunum er víða svo kalt að þar er snjór allt árið og jöklar. Vatnsorka hefur verið virkjuð í litlum mæli, en í Nepal er fjöldi áa og fossa. Skógar eru fyrst og fremst notaðir sem eldsneyti. Úr eldivið fæst 90% þeirrar orku sem notuð er í Nepal. Þetta hefur leitt til skógar- og jarðeyðingar. Ræktun smábænda á litlum svæðum í fjöllunum hefur þó hindrað jarðvegseyðingu. Vatn í landinu er mengað vegna lélegrar fráveitu og úrgangs frá smáiðnaði landsins. Vegna mengunar frá bílum og öðrum farartækjum eru gæði lofts í stærstu borgunum léleg.

Saga

Nepal er innilokað á milli Indlands og Kína, en bæði löndin hafa haft mikil áhrif á Nepal í aldanna rás. Landið hefur þó aldrei verið hernumið, þrátt fyrir að bæði Indverjar og Bretar hafi lengi stjórnað utanríkismálum þess. Í Nepal er löng hefð er fyrir einvöldum, valdamiklum konungum og spilltum stjórnmálamönnum. Það auðveldaði maóískum skæruliðum að koma sér fyrir í fátækri nepalskri landsbyggðinni. Afstaða maóista gegn einræði og lénsskipulagi aflaði þeim stuðnings meðal fátækra bænda sem fannst þeir vanræktir í nepölskum stjórnmálum. Þeir komu af stað „Stríði fólksins“ árið 1996 og fengu fljótt marga fylgismenn. Stríðsreksturinn sem fylgdi næstu ár kostaði 13 þúsund mannslíf.

Vistfræðileg fótspor

7

0,7

jarðarkúlur Nepal

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Nepal, þá þyrftum við 0,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Nepalskt samfélag einkennist af spennu á milli ríkisstjórnarinnar og uppreisnarmanna annars vegar og ríkisstjórnarinnar og konungdæmisins hins vegar. Árið 2001, í hinum svokölluðu „konungshallarfjöldamorðum“ myrti drukkinn krónprins konunginn, drottninguna og átta aðra meðlimi konungsfjölskyldunnar áður en hann svipti sjálfan sig lífi. Yngri bróðir konungsins tók við krúnunni. Árið 2005 kom hann á að nýju einræði í Nepal, hann leysti kjörna fulltrúa frá embættum og gerði landið að hreinræktuðu einræðisríki. Eftir mikinn þrýsting frá alþjóðasamfélaginu og mikil innanríkismótmæli var þjóðþingið sett aftur vorið 2006. Í dag er stjórnmálaástand mjög ótryggt í Nepal.

Lífskjör

12

129 / 169

HDI-lífskjör Nepal

Nepal er númer 129 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Nepal er eitt af fátækustu löndum heims og er samkvæmt SÞ skilgreint sem eitt af þeim vanþróuðustu. Stór hluti íbúa landsins býr við sjálfsþurftarbúskap og áætlað er að um 40 prósent íbúanna séu vannærðir. Landbúnaður er mikilvægur fyrir Nepal. Á láglendinu er ræktaður sykurreyr, hrísgrjón, korn, jurtaolía, grænmeti, tóbak, jurtir og krydd. Þeir íbúar sem búa í yfir 3000 metra hæð yfir sjávarmáli stunda nautgriparækt. Iðnaður í Nepal er vanþróaður, en Nepalbúar framleiða teppi og textíl til útflutnings. Ferðaþjónusta hefur aukist og er orðin mikilvæg tekjulind fyrir landið. Það veldur því að pólitískur óstöðugleiki hefur mikil áhrif á íbúanna, því ferðaþjónustan dettur niður þegar óstöðugleiki ríkir.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Nepal fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

0 9 10 10 10 10 10 10 10 10

1,1

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Nepal

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

2

4 725

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Nepal

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

12

129 / 169

HDI-lífskjör Nepal

Nepal er númer 129 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

5 10 10 10 10 10 10 10 10 10

0,5

Hlutfall vannærðra íbúa Nepal

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

10 6 0 0 0 0 0 0 0 0

1,6

af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Nepal

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 10 0

9,0

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Nepal

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

5

0,452

GII-vísitala í Nepal

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

7

0,7

jarðarkúlur Nepal

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Nepal, þá þyrftum við 0,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

5

0,51

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Nepal

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

30 896 590

Fólksfjöldi Nepal

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

10 10

2,0

Fæðingartíðni Nepal

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27

27

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Nepal

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

10 10 10 10 10 10 10 1 0 0

7,1

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Nepal

Tölfræði um ólæsi

Kort af Nepal