Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Höfuðborg: | Oslo |
Þjóðernishópar: | Norðurmenn, Samar |
Túngumál: | Norska, samíska |
Trúarbrögð: | Evangelísk-lúthersk kristni 86%, pinsemenigheter 1%, kaþólikkar 1%, aðrir kristnir hópar 2%, múslímar 2%, aðrir 8% |
Stjórnarform: | Stjórnarskrábundið konungsdæmi |
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 114 899 PPP$ |
Landafræði
Strandlengja Noregs er meira en 2.500 km löng og er landið innan við 60 kílómetra breitt þar sem það er mjóst. Með strandlengjunni eru þröngir firðir og inn til landsins skógi vaxin fjöll. Loftslagið er hlýrra en búast mætti við vegna Golfstraumsins sem liggur með fram ströndinni. Það er breytilegt á milli landshluta: Í austurhluta landsins er þurrt og svalt meginlandsloftslag, en í vestri er rakara og tempraðra úthafsloftslag og í norðri er kalt heimskautaloftslag. Hluti landsins varð fyrir áhrifum frá geislavirkum kjarnorkuútgangi eftir Tsjernobyl-slysið árið 1986 og eru sum svæði enn að jafna sig af eftirköstunum. Noregur er meðal þeirra landa sem sleppir út mestu af koltvísýringi í hlutfalli við íbúafjölda. Ástæðuna má rekja til aukinnar áherslu á notkun náttúrugass, vaxandi iðnaðar og útblásturs gróðurhúsategunda sem hefur aukist smám saman undanfarin ár, en landið hefur undirritað Kyotó-bókunina um minnkun úrgangs að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2012.
Saga
Noregi var í mörg hundruð ár stjórnað af smákóngum sem réðu yfir litlum svæðum. Á 10. öld sameinaði Haraldur hárfagri landið í eitt ríki. Næstu 400 ár þar á eftir lögðu norsku konungarnir undir sig Ísland og Grænland og fóru í ránsferðir um stóra hluta Evrópu. Noregur var á þessum tíma mikið verslunarveldi. Nærri helmingur íbúa landsins lét lífið í svartadauða á miðri fjórtándu öld. Í lok 14. aldar og fram á byrjun tuttugustu aldar var Noregur í bandalagi með Danmörku og þar á eftir í bandalagi með Svíþjóð. Landið varð ekki sjálfstætt fyrr en árið 1905. Noregur var í upphafi beggja heimsstyrjaldanna hlutlaust land en varð fyrir innrás frá Þýskalandi í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir það hætti landið að vera opinberlega hlutlaust. Eftirstríðsárin einkenndust af uppbyggingu landsins og þróun sterks velferðarkerfis. Noregur kaus að ganga ekki í Evrópubandalagið árið 1971, né í Evrópusambandið árið 1994. Þegar landið hóf olíuvinnslu árið 1972 efldist efnahagur þess gífurlega.
Vistfræðileg fótspor
3,4
jarðarkúlur Noregur
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Noregur, þá þyrftum við 3,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Noregur er þingbundið konungsveldi, en í dag hefur konungurinn fyrst og fremst táknrænar skyldur og réttindi. Hin raunverulegu völd liggja hjá Stórþinginu sem er kosið til fjögurra ára í senn. Meirihluti Stórþingsins myndar ríkisstjórn. Noregur hefur, eins og önnur norræn lönd, sterka sósíaldemókratíska hefð. Undanfarið hafa vinsældir hægri- og miðjuflokka aukist mjög. Lífskjör í Noregi eru meðal þeirra bestu í heimi, með mjög háum framfærslukostnaði og umfangsmiklu skatta- og tollakerfi. Í landinu er vel þróað velferðarkerfi, með ókeypis menntun, góðri heilbrigðisþjónustu og góðu félags- og tryggingakerfi. Mikilvægasta umræðuefni norskra stjórnmála er nú orðið spurningin um hvernig fjármagna eigi þetta kerfi þegar olíuna þrýtur. Önnur pólitísk baráttumál eru baráttan gegn loftslagsbreytingum, fjölgun innflytjenda og hlutverk ríkisins í viðskiptalífinu.
Lífskjör
2 / 169
HDI-lífskjör Noregur
Noregur er númer 2 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Áður en olía uppgötvaðist í Norðursjó á sjöunda áratug síðustu aldar var Noregur siglinga-, landbúnaðar- og fiskveiðiþjóð og vann stærstur hluti íbúanna innan þessara atvinnugreina. Undanfarna áratugi hefur olíuiðnaðurinn ráðið yfir norsku viðskiptalífi og dregið hefur úr hefðbundnum atvinnugreinum. Efnahagsþróun hefur sveiflast í takt við olíuverð á heimsmarkaði. Til að vinna á móti áhrifum þessara sveifla stofnaði ríkið sjóð árið 1995, sem hefur það markmið að fjárfesta erlendis fyrir stærstan hluta hagnaðarins af olíuiðnaðnum. Olíutekjurnar og þróun í þjónustugeiranum hefur leitt til þess að þjóðarframleiðsla í Noregi er sú hæsta á hvern íbúa í heiminum í dag. Í dag vinnur meira en 70 prósent af íbúunum innan opinbera geirans og þjónustugeirans. Þrátt fyrir jákvæða þróun hefur landið gengið í gegnum mörg erfið tímabil undanfarin ár, einkum vegna lágs verðs á olíu og óstöðugleika í efnahagskerfi heimsins. Ríkið á enn hluta fyrirtækja í atvinnulífinu. Undanfarin ár hefur einkavæðing innan atvinnugreina eins og fjarskipta og samgangna aukist smám saman.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Noregur fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
0,3
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Noregur
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
114 899
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Noregur
Lífskjör
2 / 169
HDI-lífskjör Noregur
Noregur er númer 2 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
Gögn vantar
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
9,9
af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Noregur
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
9,7
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Noregur
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,016
GII-vísitala í Noregur
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
3,4
jarðarkúlur Noregur
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Noregur, þá þyrftum við 3,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
6,73
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Noregur
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Noregur
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
1,5
Fæðingartíðni Noregur
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
2
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Noregur
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
Gögn vantar