Fáni

Höfuðborg: Panama City
Þjóðernishópar: Mestizo 70%, ameríku-indíánar 20%, hvítir 10%
Tungumál: Spænska, enska
Trúarbrögð: Kaþólikkar 85%, mótmælendur 15%
Stjórnarform: Þingbundið lýðræði
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 39 280 PPP$

Landafræði

Panama tengir saman Norður- og Suður-Ameríku og er einungis 55 kílómetrar á breidd þar sem það er mjóast. Við ströndina eru frumskógar og í miðju landi eru fjöll sem ná upp í 3500 metra hæð yfir sjávarmáli. Á láglendinu á milli fjallanna er Panama-skurðurinn, þar sem hægt er að sigla á milli Atlantshafsins og Kyrrahafsins. Í landinu er hitabeltisloftslag með miklum raka, löngum regntímabilum og háu hitastigi. Staðsetningin á milli tveggja úthafa býður upp á mikla fjölbreytni tegunda í regnskóginum, sem nú er ógnað vegna eyðingar. Önnur umhverfisvandamál eru jarðvegseyðing, mengað drykkjarvatn og mikil loftmengun í borgunum.

Saga

Vegna legu sinnar mættust helstu siðmenningarsamfélög Mið-Ameríku þar, eins og til að mynda Mayar og Aztekar úr norðri og Cihbchaenar úr suðri. Landið var einnig aðsetur spænska keisaraveldisins í latnesku-Ameríku í meira en 300 ár. Þegar Spánverjar komu til Panama árið 1502 lögðu þeir landið undir sig á stuttum tíma. Stærstur hluti þeirra ættbálka sem þar voru dó út, aðallega vegna þrælahalds og nýrra sjúkdóma. Árið 1821 varð Panama hluti af Stóru-Kólumbíu, þar til landið fékk sjálfstæði árið 1903. Landið hefur alla tuttugustu öldina einkennst af pólitískum óstöðugleika og var á árunum 1968 til 1989 stjórnað af ýmsum einræðisherrum, þar til Bandaríkin réðust inn í landið og komu á lýðræði. Bandaríkjamenn hafa haft mikil áhrif í landinu frá sjálfstæði þess og áttu Panamaskurðinn, sem var byggður með hjálp Bandaríkjanna árið 1914, fram til aldamóta.

Vistfræðileg fótspor

9 7

1,7

jarðarkúlur Panama

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Panama, þá þyrftum við 1,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Í Panama er lýðræði, þar sem forsetinn er bæði forsætisráðherra og höfuð ríkisins. Forsetinn hefur víðtæk völd, er kjörinn til fimm ára í senn og getur ekki hlotið endurkjör. Stjórnmál landsins einkennast af persónupólitík og skammvinnum bandalögum milli ólíkra flokka, spilling er umfangsmikil og lítil virðing er borin fyrir stjórnmálamönnum. Herinn hefur löngum gegnt mikilvægu hlutverki og hefur enn þann dag í dag mikil áhrif á stjórnmál landsins. Landið stendur frammi fyrir stórfelldum pólitískum verkefnum í sambandi við ræktun eiturlyfja, smygli á þeim og ólöglegan flutning fólks á milli Suður- og Norður-Ameríku. Önnur aðkallandi verkefni tengjast slæmri meðferð á íbúum af indíánaættum, miklu atvinnuleysi og vaxandi mismun á milli fátækra og ríkra.

Lífskjör

16

52 / 169

HDI-lífskjör Panama

Panama er númer 52 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Í Panama er mjög lítill iðnaður en nálægt 80 prósent af vergri landsframleiðslu kemur frá ólíkum greinum þjónustu. Sérstæð lega landsins og ósnert náttúra gerir það að eftirsóttum ferðamannastað og er ferðaþjónustan í örum vexti. Frjálslynt efnahagskerfi og gott skattakerfi hafa veitt landinu mikilvæg banka- og tryggingaviðskipti. Efnahagsstarfsemi lýtur ströngu aðhaldi í kringum Panamaskurðinn, sérstaklega í borgunum Colón og í Panamaborg. Þjóðnýting skurðarins árið 2000 og vera bandaríska hersins á staðnum, hafa leitt til aukinnar uppbyggingar með fram honum. Atvinnuleysi er, og kemur til með að vera, hátt, þrátt fyrir umfangsmiklar félagslegar umbætur undanfarna áratugi.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Panama fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

1 10 10 10 10 10 10 10 10 10

0,9

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Panama

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

10

39 280

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Panama

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

16

52 / 169

HDI-lífskjör Panama

Panama er númer 52 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

2 10 10 10 10 10 10 10 10 10

0,8

Hlutfall vannærðra íbúa Panama

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 0 0

8,0

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Panama

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

4

0,392

GII-vísitala í Panama

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

9 7

1,7

jarðarkúlur Panama

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Panama, þá þyrftum við 1,7 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

10 10 2

2,23

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Panama

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

4 468 087

Fólksfjöldi Panama

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

10 10 3

2,3

Fæðingartíðni Panama

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14

14

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Panama

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

10 10 10 10 10 10 10 10 10 6

9,6

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Panama

Tölfræði um ólæsi

Kort af Panama