Síle

Síðast uppfært: 21.07.2024

Efnahagur Síle er talinn vera einn sá stöðugasti og samkeppnisvænasti í Suður-Ameríku. Útflutningur á kopar hefur verið þungamiðjan í þróun efnahagslífs landsins. Undanfarin ár hefur landið einnig skipað sér í röð meðal helstu framleiðanda eldislax í heiminum.

Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 30 209 PPP$

Landafræði

Síle er 4200 metrar að lengd og þar er mjög breytilegt loftslag. Nyrsta svæði landsins er það þurrasta í heimi og nefnist Atacama-eyðimörkin. Í suðri er loftslagið aftur á móti svalt og rakt, en þar líkist náttúran þeirri í Skandinavíu. Þar eru barrskógar, firðir, stöðuvötn og skerjagarðar. Í Síle eru mörg virk eldfjöll, en jarðskjálftinn sem reið þar yfir 27. febrúar 2010 vakti mikla alþjóðlega athygli. Fyrir utan þær miklu skemmdir sem urðu á mannvirkjum í kjölfar skjálftans eru innviðir landsins almennt sterkir. Á seinustu áratugum hefur Síle náð miklum árangri í laxeldi, en iðnaðurinn hefur því miður haft neikvæð áhrif á umhverfið. Losun úrgangsefna og eiturs frá verksmiðjunum hefur haft mikil áhrif á dýralíf og gæði neysluvatns.

Saga

Andesfjöllin einangruðu frumbyggjana í Síle frá öðrum hlutum heimsins í mörg ár og var landið þess vegna fámennt framan af. Árið 1530 komu Spánverjar til landsins og 1541 stofnaði Pedro de Valdivia bæinn Santiago. Landið öðlaðist ekki sjálfstæði að nýju fyrr en árið 1818. Það ár markaði upphafið að löngu tímabili lýðræðis sem varði fram að árinu 1973, með tveimur undantekningum þar sem stjórnleysi ríkti í landinu í kringum 1830 og 1930. Árið 1970 var sósíalistinn Salvador Allende kjörinn leiðtogi landsins, en honum var steypt af stóli af Augusto Pinochet árið 1973. Í 16 ár bjuggu íbúar Síle við einræði og kúgun, en að lokum var Pinochet neyddur til að halda lýðræðislegar kosningar. Árið 1990 var einræðisherranum gert að víkja fyrir lýðræðinu og tók Patricio Aylwin yfir stjórn landins, sem markaði upphafið að nýju tímabili í sögu Síle.

Samfélag og stjórnmál

Eftir að vinstrimenn höfðu setið við stjórnvölinn í 20 ár var hægrimaðurinn Sebastián Piñera kosinn forseti Síle þann 17. janúar 2010. Piñera er menntaður hagfræðingur og sem valdamikill viðskiptamaður vill hann að einkarekin viðskipti fái stærri hlut í efnahagslífi Síle í framtíðinni. Í Síle er lýðræði og hefur forsetinn, sem er kjörinn til fjögurra ára í senn, framkvæmdavaldið. Forsetinn velur ráðherrana sem sitja í ríkisstjórninni og löggjafarvaldið er falið þjóðþinginu. Stjórnkerfi Síle styður einkavæðingu og frjálsan markað í efnahagsstefnu sinni.

Hagkerfi og viðskipti

Síle er talið vera eitt af sterkustu löndum Suður-Ameríku vegna stöðugleika efnahagsins og stjórnkerfisins. Árið 1831 var þingræði innleitt í Síle og fjöldi laga voru sett sem tryggðu þjóðinni yfirráðarétt yfir framleiðslu- og samgöngumálum. Mikill uppgangur varð í landinu þar sem námuvinnsla og iðnaður urðu mikilvægir atvinnuvegir. Árið 1876 sá Síle um 62% af allri koparframleiðslu í heiminum og varð hafnarbærinn Valparaíso ein helsta miðstöð verslunar og viðskipta í Suður-Ameríku. Í dag byggir hagkerfi Síle að miklu leyti á útflutningi á steinefnum, en sá útflutningur er helmingurinn af samanlögðum heildarútflutningi landsins. Landbúnaður og fiskeldi hefur einnig blómstrað á seinni árum.

Kort