Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Bratislava
Þjóðernishópar: Slóvakar 86%, ungverjar 10%, rómanar 2%, annað/óskilgreint 2% (2001)
Tungumál: Slóvanska, ungverska, rómanska, úkraínska (2001)
Trúarbrögð: Kaþólikkar 69%, mótmælendur 11%, grískir-kaþólikkar 4%, aðrir/óskilgreint 3%, trúleysingjar 13% (2001)
Stjórnarform: Lýðveldi
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 37 459 PPP$

Landafræði

Í norður- og miðhluta Slóvakíu eru Karpatene-fjöllin áberandi, með fjallstoppum sem ná 2655 metra yfir sjávarmál. Ár renna frá fjallinu að sléttum í sunnanverðu landinu. Flestar minni árnar renna út í Dóná. Í Slóvakíu er meginlandsloftslag, með köldum, þurrum vetrum og heitum sumrum. Í fjöllunum er bæði kaldara og meiri úrkoma en á sléttunum í suðri, þar sem höfuðborgin Bratislava liggur. Í fyrrum Tékkóslavakíu voru kol algengur orkugjafi og er loftmengun í Slóvakíu enn stórt vandamál vegna þess. Úrgangur frá iðnaði er stór ógn við umhverfið, auk þess hversu skaðlegur hann er heilsu íbúanna. Lungnakrabbamein er algengt á menguðustu svæðunum. Stór svæði af skógi hafa eyðilagst vegna súrs regns frá Póllandi og fyrrum Austur-Þýskalandi. Jarðvegseyðing vegna landbúnaðar og námuvinnslu er einnig mikil umhverfisógn.

Saga

Slóvakía var hluti af Austurríki-Ungverjalandi fram til ársins 1918, þegar landið sameinaðist Tékklandi í Tékkóslóvakíu. Slóvakía var stofnað sem ríki í fyrsta sinn árið 1939 í kjölfar Munchen-samkomulagsins og landið gekk í bandalag með Þýskalandi á meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð. Eftir stríðið var Tékkóslóvakía endurstofnuð, undir miklum áhrifum frá kommúnistastjórn Sovétríkjanna. Hinni friðsömu „Flauelsbyltingu“ árið 1989 lauk með falli kommúnistastjórnarinnar í Tékkóslóvakíu. Árið 1993 var landinu skipt í Slóvakíu og Tékkland, en löndin héldu áfram góðu sambandi.

Vistfræðileg fótspor

9 9 8

2,8

Jarðarkúlur Slóvakía

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Slóvakía, þá þyrftum við 2,8 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Slóvakía er þingbundið lýðveldi. Forsetinn hefur viss pólitísk völd, en framkvæmdavaldið liggur að mestu leyti hjá forsætisráðherranum og ríkisstjórninni. Á þinginu, sem er löggjafarsamkunda Slóvakíu, eru 150 þingmenn. Flokkakerfið er uppskipt og samsteypustjórnir algengar. Frá því í lok tíunda áratugarins hafa stjórnvöld lagt áherslu á nútímavæðingu efnahagskerfisins með fjölda erlendra fjárfestinga. Þessar breytingar hafa þó leitt til mikils munar á milli ríkra og fátækra, þar sem eftirlaunaþegar og róma fólk líða mest. Um það bil 375.000 róma búa við mjög slæmar aðstæður í Slóvakíu, flestir þeirra búa í braggahverfum í úthverfum borganna. Samkvæmt tölum frá árinu 2000 eru um það bil 75 prósent þeirra atvinnulausir og á sumum svæðum eru íbúar heilu bæjanna háðir félagslegri aðstoð. Árið 2004 gekk Slóvakía í Evrópusambandið og varnarbandalagið NATO. Unnið er að því að sækja um aðild að Myntbandalagi Evrópu, sem gengur þó hægt vegna mikillar skriffinnsku. Síðastliðin ár hafa þjóðernisflokkar sem tala gegn minnihlutahópum í Slóvakíu aukið fylgi sitt. Töluverð mótmæli hafa einnig verið í landinu vegna skilyrða aðstoðar Evrópusambandsins, sem mörgum þykja of ströng, og sökum spillingar.

Lífskjör

16

43 / 188

HDI-lífskjör Slóvakía

Slóvakía er númer 43 af 188 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Slóvakía hefur horfið frá áætlunarbúskap til markaðsbúskapar. Umskiptin gengu hægt vegna spillingar og pólitísks óstöðugleika. Lágir skattar eru aðdráttarafl fyrir erlenda fjárfesta og bankageirinn er í dag nánast eingöngu rekinn af erlendum aðilum. Hlutfall iðnaðar og landbúnaðar af vergri landsframleiðslu hefur fallið frá lokum tíunda áratugarins á sama tíma og aukning hefur orðið í þjónustuiðnaði. Slóvakía er háð innflutningi á olíu og gasi frá Rússlandi. Aðrir mikilvægir viðskiptaaðilar eru Tékkland og önnur ESB-lönd. Ár Slóvakíu eru notaðar til farþega- og vöruflutninga, þar eru góðar tengingar í gegnum ár til annarra evrópskra landa. Stjórnvöld stefna að því að notfæra sér landfræðilega stöðu landsins í miðri álfunni og gera landið að samgöngumiðstöð í Evrópu.

Kort af Slóvakía