Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Khartoum
Þjóðernishópar: Súdanar 70%, 5,5% Beja, 2,5% Nuba, aðrir 22%
Túnumál: Arabíska, núbíska, nílótíska, ta bedawie, enska, annað
Trúarbrögð: Múslimar 70%, hefðbundin trúarbrögð 25%, kristnir 5%
Stjórnarform: Sambandslýðveldi - bráðabirgðaríkisstjórn
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 4 216 PPP$

Landafræði

Súdan er stærsta land Afríku, og tíunda stærsta land í heimi. Lengst í norðri er gríðarstórt, þurrt eyðimerkursvæði, en sunnar eru runnasteppur og savannar. Í suðaustri er Sudd fenjasvæðið á bökkum Hvítu-Nílar, eitt af stærstu votlendissvæðum jarðar. Lágir fjallgarðar rísa yfir slétturnar, og mynda náttúruleg landamæri við eþíópíska hálendið í suðaustri og Úganda og Chad í suðri og suðvestri. Níl rennur í gegnum landið en meðfram henni eru mjó belti af frjósömu ræktunarlandi. Annars er landið þurrt.

Loftslagið í Súdan breytist úr þurru eyðimerkurloftslagi í norðri í rakt hitabeltisloftslag í suðaustri. Hitastigið er hátt, og getur farið upp í 50 gráður þar sem heitast er. Árstíðamunur kemur fram í úrkomu, sem er ójöfn yfir árið, með miklum regntímabilum. Stórir hlutar landsins eru háðir úrkomu, og verða fyrir barðinu á miklum þurrkum þegar skortur er á regni. Stærstu umhverfisvandamál Súdans eru eyðimerkurmyndun og skortur á hreinu drykkjarvatni. Vaxandi olíuiðnaði er illa stjórnað sem leiðir einnig til sífellt vaxandi umhverfisvandamála.

Saga

Norðurhluti Súdans varð fyrir miklum áhrifum frá valdamiklum ríkjum í nágrannalandinu Egyptalandi. Súdönsku og eþíópísku þjóðirnar áttu tíð samskipti meðfram Níl, og í mörg hundruð ár réðu súdanskir faróar yfir öllu Egyptalandi og norðurhluta Súdans.

Í gamla daga var hið valdamikla Meroa konungdæmi stofnað í Norður-Súdan. Í suðri bjuggu aðallega hirðingjar og á svæðinu voru engin stór konungsdæmi. Á 13. öld réðust egypskir múslímar, Mamelúkkar inn í landið, og seinna var landið innlimað í Ottómankeisaraveldið.

Frá sjötta áratug nítjándu aldar beittu Bretar auknum áhrifum sínum í Egyptalandi og Austur-Afríku, og eftir að hafa barið niður uppreisn um aldamótin tók Bretland við stjórn þess sem nú heitir Súdan árið 1924. Svæðinu var þá skipt í tvær nýlendur. Eftir seinni heimsstyrjöldina sameinuðust Norður- og Suður-Súdan í eitt ríki, sem varð sjálfstætt árið 1956. Stuttu eftir sjálfstæði braust út borgarastyrjöld í Suður-Súdan vegna efnahagskreppu og sökum þessa að íbúar í suðri töldu sér mismunað í samanburði við íbúa norðursins. Veikar ríkisstjórnir, valdarán hersins og borgarastyrjaldir rak hvað annað, þar til árið 1972, þegar friðarsamkomulag var undirritað. Árið 1983 braust út stríð vegna aukinna áhrifa íslamtrúar, þegar ríkistjórnin vildi innleiða shar’ia lög (islömsk lög) í öllu landinu. Stríðið varði til ársins 2005, þegar nýtt friðarsamkomulag var undirritað.

Sex árum síðar var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla og þann 9.júlí 2011 var Súdan skipt í tvennt og öðlaðist Suður-Súdan sjálfstæði.

Vistfræðileg fótspor

9

0,9

jarðarkúlur Súdan

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Súdan, þá þyrftum við 0,9 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

Samfélag og stjórnmál

Súdan er í dag nánast eingöngu stjórnað af einræðisherranum Omar Hassan al-Bashir, sem komst til valda eftir valdarán árið 1989. Al-Bashir er hægrisinnaður arabískur þjóðernissinni, og hefur innleitt stórtæk ættleiðingarlög gegn öðrum íbúum landsins. Suður-Súdan fékk eigið þing eftir friðarsamkomulagið árið 2005.

Meira en fimm milljónir manna eru á flótta í eigin landi, og margar milljónir hafa flúið til nágrannalandanna. Landið skortir vegi, hreinlæti er ábótavant og raforka er af skornum skammti og óstöðug. Ríkisstofnanir eru veikar, og mörgum svæðum er stýrt eftir hreinum shar´ia lögum sem mismuna fólki, sérstaklega konum og þeim sem ekki eru múslímar.

Eftir sjálfstæði Suður-Súdan í júlí 2011 hafa löndin ekki ennþá komist að samkomulagi um hvernig eigi að deila landamærum, skiptingu skulda og náttúruauðlinda, eins og olíu og vatni. Súdan glímir einnig við óstöðugleika í nokkrum héruðum, eins og í Bláu Níl (e.Blue Nile)og öðrum Norður-Súdönskum ríkjum, Suður-Kordofan.

Lífskjör

Súdan er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hagkerfi og viðskipti

Súdan er eitt af fátækustu löndum heims og lifa margir undir fátækramörkum. Á síðastliðnum árum hefur efnahagur Súdan vaxið hratt vegna vaxandi olíuiðnaðar. Landbúnaður er einnig mikilvægur atvinnuvegur, bæði hvað varðar atvinnuástand og tekjur. Mikill hluti landbúnaðar er sjálfsþurftarbúskapur, en Súdan er einnig með töluverðan útflutning, sérstaklega á bómull. Eini umtalsverði iðnaðurinn í landinu eru bómullarverksmiðjur, sem hafa starfað í einstökum hlutum landsins í yfir hundrað ár.

Eftir margra áratuga stríð skortir landið nothæft samgöngukerfi og aðgang að orku til að geta byggt upp árangursríkt viðskiptalíf.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti viðskiptabann á landið allan tíunda áratuginn vegna skorts á endurbótum, en um aldamótin hóf sjóðurinn aðstoð við landið í samvinnu við ESB og OPEC.

Eftir sjálfstæði Suður-Súdan er stórt tap á þjóðartekjum Súdans áhyggjuefni. Mest af olíu er að finna í Suður-Súdan og á umdeildu svæði við landamæri norður og suðurs. Á sama tíma er Suður-Súdan háð norðri vegna olíuleiðsla sem að renna í gegnum norðurhluta Súdan að ströndinni við Rauðahaf.

Aukna trú á landinu má þakka þessum vaxandi olíuiðnaði, sem hefur meira en tvöfaldað framleiðslu sína undanfarin ár. Vitað hefur verið af olíu í landinu frá því á þriðja áratug síðustu aldar, en framleiðslan hefur ekki komist á skrið fyrr en nýlega og undanfarin ár hefur hagkerfi Súdan vaxið einna hraðast af hagkerfum heims.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Súdan fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

0 1 10 10 10 10 10 10 10 10

1,9

af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Súdan

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

2

4 216

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Súdan

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

Súdan er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

0 8 10 10 10 10 10 10 10 10

1,2

Hlutfall vannærðra íbúa Súdan

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 1 0

8,1

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Súdan

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

6

0,553

GII-vísitala í Súdan

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

9

0,9

jarðarkúlur Súdan

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Súdan, þá þyrftum við 0,9 jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

5

0,47

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Súdan

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

48 109 006

Fólksfjöldi Súdan

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

10 10 10 10 3

4,3

Fæðingartíðni Súdan

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55

55

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Súdan

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

10 10 10 10 10 10 1 0 0 0

6,1

af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Súdan

Tölfræði um ólæsi

Kort af Súdan