Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Höfuðborg: | Seúl |
Þjóðernishópar: | Kóreumenn |
Túngumál: | Kóreska |
Túarbrögð: | Kristnir 26.3%, búddistarr 23.2%, aðrir/óþekkt 50.6% (1995) |
Sjórnarform: | Lýðveldi |
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 50 070 PPP$ |
Landafræði
Suður-Kórea er á sunnanverðum Kóreuskaganum. 85 prósent landsins eru fjöll. Meðfram austur ströndinni eru brött fjöll en í vestri, á grunnsævi Gulahafs, eru margar eyjar og náttúrulegar hafnir. Í landinu er monsúnloftslag, með köldum vetrum og heitum sumrum. Hitabeltisstormar eru tíðir. Skógarhögg hefur verið mikið stundað í Suður-Kóreu undanfarin ár, sem hefur leitt til þess að upprunalegir skógar eru nánast horfnir. Súrt regn, ofveiði, mengað vatn vegna úrgangs frá verksmiðjum og loftmengun í stærstu borgunum eru einnig umhverfisvandamál.
Saga
Saga Kóreu einkennist af legu landsins á milli Kína og Japan. Öldum saman hafði Kína mikil áhrif á Kóreuskaganum, en í lok nítjándu aldar tóku Japanir við. Landið var japönsk nýlenda frá 1895 og fram að seinni heimsstyrjöldinni. Eftir ósigur Japana í stríðinu var Kóreu skipt í tvö svæði og átti skiptingin aðeins að vera tímabundin. Norðurhlutanum var stjórnað af Sovétríkjunum, en suðurhlutanum af Bandaríkjunum. Ríkisstjórnir sem voru erkióvinir voru myndaðar á hvoru svæði. Árið 1948 var lýst yfir sjálfstæði Suður- og Norður-Kóreu. Bandaríkin og Sovétríkin drógu sig í kjölfarið út úr löndunum. Kóreustríðið braust út árið 1950, eftir árás frá Norður-Kóreu. Á meðan Bandaríkin og flest aðildarlönd SÞ studdu Suður-Kóreu, var Norður-Kórea studd af Kína og Sovétríkjunum. Þegar stríðinu lauk þremur árum seinna, voru landamærin svo til óbreytt. Friðarsamkomulag á milli ríkjanna er þó enn óundirritað og landamærin lokuð. Í byrjun fimmta áratugarins tók Park Chung Hee við völdum þegar herinn gerði uppreisn. Lýðræðisleg réttindi voru takmörkuð og fyrst árið 1988 þvinguðu mótmælendur fram lög sem formlega tryggja mannréttindi.
Vistfræðileg fótspor
3,7
jarðarkúlur Suður-Kórea
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Suður-Kórea, þá þyrftum við 3,7 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Utanríkisstefna Suður-Kóreu mótast mjög af stirðu sambandi við Norður-Kóreu. Bæði löndin óska þess að sameinast, en hafa eins og stendur ekki náð að koma sér saman um hvernig það gæti orðið. Suður-Kóreumenn hræðast að verða aftur fyrir árás frá Norður-Kóreu og er eftirlit á landamærum ríkjanna tveggja með því mesta sem gerist í heiminum. Hið kalda viðmót Suður-Kóreu gagnvart nágranna sínum í norðri hefur tekið breytingum frá því að Kim Dea Jung var kjörinn forseti árið 1998. Hann hleypti af stokkunum svokallaðri „sólskinsstefnu”, sem felur í sér að Suður-Kórea veitir nágrannalandi sínu efnahags- og mannúðaraðstoð án skilyrða. Hvort þessi stefna beri árangur eru skiptar skoðanir um, en Norður-Kórea hefur undanfarið nýtt stærstan hluta hennar í umfangsmikið endurvopnunarverkefni. Síðastliðin ár hefur íhaldsflokkurinn verið við stjórnvölinn. Árið 2012 vann frambjóðandi þeirra, Park Geun Hye, forsetakosningarnar. Park Geun Hye er dóttir Park Chung Hee, fyrrum einræðisherra. Hún hefur gefið út að aukin samskipti við Norður-Kóreu séu eitt af áherslumálum hennar. Bandaríkin gegna mikilvægu hlutverki í Suður-Kóreu, bæði efnahags- og stjórnmálalega. Enn eru margir bandarískir hermenn á landamærasvæðinu, en áætlað er að þeir yfirgefi svæðið í nánustu framtíð.
Lífskjör
16 / 169
HDI-lífskjör Suður-Kórea
Suður-Kórea er númer 16 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþTölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Suður-Kórea fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
0,3
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Suður-Kórea
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
50 070
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Suður-Kórea
Lífskjör
16 / 169
HDI-lífskjör Suður-Kórea
Suður-Kórea er númer 16 af 169 löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
Gögn vantar
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
9,9
af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Suður-Kórea
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
9,8
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Suður-Kórea
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,067
GII-vísitala í Suður-Kórea
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
3,7
jarðarkúlur Suður-Kórea
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Suður-Kórea, þá þyrftum við 3,7 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
10,99
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Suður-Kórea
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Suður-Kórea
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
0,9
Fæðingartíðni Suður-Kórea
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
3
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Suður-Kórea
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
9,9
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Suður-Kórea