Sýrland

Síðast uppfært: 24.07.2024

Sýrland var áður miðstöð elstu siðmenningar heims, en er í dag olíuframleiðsluland með einræðisstjórn þar sem fólksfjölgun er mikil. Árið 2011 braust út uppreisn í Sýrlandi sem þróaðist út í blóðugt borgarastríð.

Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Damaskus
Þjóðernishópar: Arabar 90.3%, Kúrdar, Armenar og aðrir 9.7%
Tungumál: Arabíska (opinbert), kúrdískar mállýskur og armenskar mállýskur minnihlutahópa. Franska og enska eru einnig notaðar.
Trúarbrögð: Súnní-múslimar 74%, alavítar, drúsar og aðrir múslímskir minnihlutahópar 16%, kristnir 10%, gyðingar (lítið samfélag í Damaskus, Al Qamishli og Aleppo)

Landafræði

Sýrland samanstendur að mestu leyti af fjöllum og sléttum sem þekja þrjá fjórðu hluta landsins. Sléttu- og fjallalandslagið er í miðju landinu, á milli raka strandsvæðisins í vestri og hálfþurra eyðimerkursvæðisins í suðausturhluta landsins. Vegna lítillar úrkomu á sléttunum hafa yfirvöld sett af stað stórt áveituverkefni til að bæta gæði lands og auka hlut landbúnaðarlands. Fráveitur og mengun frá olíu og iðnaðargeiranum, ásamt aukinni fólksfjölgun, hafa leitt til skorts á hreinu vatni. Lítil úrkoma hefur einnig orsakað vandamál tengd skógareyðingu, ofbeit, jarðvegseyðingu og eyðimerkurmyndun.

Saga

Sýrland var áður fyrr mikilvæg samgönguleið fyrir viðskipti á milli Egyptalands, Litlu-Asíu og Babylóníu, og vettvangur fólksflutninga og stríðsátaka. Frá árinu 1516 og fram til loka fyrri heimsstyrjaldarinnar var Sýrland hluti af hinu tyrkneska Ottóman-veldi. Árið 1920 var Sýrland franskt verndarsvæði og fékk sjálfstæði árið 1944. Á meðan á sex daga stríðinu stóð árið 1967 missti Sýrland Gólanhæðir til Ísraels. Sýrland gerði tilraun til að fá svæðið til baka árið 1973, en það mistókst. Samkomulagið við nágrannalandið Ísrael hefur síðan þá verið stirt. Árið 1970 tók Hafez al-Assad í arabíska sósíalistaflokknum Baath völdin í friðsamlegu valdaráni. Einræðisstjórnin hefur verið við völd síðan, þegar forsetinn lét lífið árið 2000 tók sonur hans Bashar al-Assad við forsetaembættinu. Árið 1976 tók Sýrland þátt í líbanska borgarastríðinu. Það var ekki fyrr en árið 2005 sem Sýrland dró herlið sitt út úr landinu vegna þrýstings frá alþjóðasamfélaginu og líbönsku stjórnarandstöðunni.

Samfélag og stjórnmál

Formlega séð er Sýrland þingbundið lýðveldi, en í reynd hefur landinu verið stjórnað eins og einræðisríki. Valdið liggur að mestu leyti hjá forsetanum og nánustu ráðgjöfum hans í hernum og öryggissveitunum. Stjórnarandstaðan í landinu er kúguð og lítil virðing er borin fyrir mannréttindum. Sýrland hefur frá því árið 1979 verið á hryðjuverkalista Bandaríkjanna og hafa bandarísk stjórnvöld einnig sett viðskiptabann á Sýrland. Ástæða viðskiptabannsins er sú að forsetinn hefur verið sakaður um að styðja við líbönsku síjamúslimsku hernaðarsamtökin Hizbollah. Í mars árið 2011 brutust út mótmæli í Sýrlandi, þeim var beint að ríkisstjórn forseta landsins Bashar al-Assad. Mótmælendur kröfðust afsagnar Assads, lýðræðis og virðingar fyrir mannréttindum. Forsetinn hefur vikið frá lögum um neyðarástand (state of emergency) sem höfðu ríkt síðan árið 1963 og lofað pólítískum umbótum. Á sama tíma brást stjórnin harkalega við aðgerðum mótmælenda og út braust borgarastríð. Mannréttindasamtök og Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir áhyggjum sínum yfir því að stjórnin og mótmælendur hafi notað hryðjuverk og ofbeldi gegn almennum borgurum.

Hagkerfi og viðskipti

Efnahagur Sýrlands og viðskipti byggjast aðallega á landbúnaði, iðnaði og olíu. Olía er mikilvægasta tekjulind landsins. Áður fyrr flutti Sýrland aðallega inn hrávörur frá öðrum löndum, en vegna aukinnar áherslu stjórnvalda á landbúnað, framleiðir og flytur Sýrland nú út eigin landbúnaðarvörur eins og bómull, ávexti og grænmeti. Stórum hluta viðskiptalífsins, þjónustugeirans og olíuiðnaðarins er stjórnað af ríkinu og er í eigu þess. Frá því á tíunda áratug síðustu aldar hafa stjórnvöld smám saman reynt að bæta efnahaginn og auka frjálslyndi, en landinu hefur ekki tekist að komast inn á heimsmarkaðinn. Næstum 60 prósent af íbúum landsins eru undir 20 ára og er atvinnuleysi á bilinu 20-25 prósent.

Kort