Fáni

Helstu tölur og staðreyndir

Höfuðborg: Funafuti
Þjóðernishópar: Pólýnesar 96%, míkrónesar 4%
Túngumál: Túvalska, enska, samóíska, kíríbatíska
Trúarbrögð: Kristnir 98%, ba'hai 1%, aðrir/ekkert 1%
Stjórnarform: Þingbundin konungsstjórn
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: 5 421 PPP$

Landafræði

Túvalú er í suðurhluta Kyrrahafsins, á svipuðum slóðum og Kiribati, Fidjieyjar og Samóaeyjar. Landið samanstendur af níu eyjum, þar af eru fimm kóralrif. Eyjarnar henta illa til landbúnaðar vegna lélegs jarðvegs og lítils ferskvatns. Í landinu er hitabeltisloftslag, með mikilli úrkomu, tíðum stormum og litlum mun á milli árstíða. Skógareyðing og mengun drykkjarvatns eru alvarleg umhverfisvandamál og eyríkið tekur virkan þátt í alþjóðlegum umhverfisstofnunum. Hæsti punktur Túvalú er í 4,5 metra hæð yfir sjávarmáli, sem gerir landið sérstaklega viðkvæmt fyrir breytingum á sjávarhæð.

Saga

Áður en Túvalú, Samóa og Tonga hófu að hafa samskipti við umheiminn voru mikil samskipti þeirra á milli. Evrópubúar komu þangað í fyrsta sinn á 16. öld, en það var ekki fyrr en á 19. öld, þegar hvalveiðar í Kyrrahafi jukust, sem auknum samskiptum var komið á. Í byrjun 20. aldar urðu eyjarnar hluti af bresku nýlendunni Gilbert- og Ellice-eyjum. Eins og í mörgum nýlendum í heiminum var sameiningin gerð þvert á ættbálka, á Ellice-eyjum var meirihlutinn Pólínesar en meirihlutinn á Gilbert-eyjum voru Míkrónesar. Eftir margra ára ættbálkastríð voru Ellice-eyjar aðskildar frá nýlendunni árið 1974 og fengu árið 1978 sjálfstæði undir nafninu Túvalú.

Samfélag og stjórnmál

Túvalú er hluti af breska samveldinu og þjóðhöfðingi þeirra er enski þjóðhöfðinginn. Landinu er stjórnað af landstjóra, sem er skipaður eftir meðmæli frá lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Í Túvalú eru engir formlegir stjórnmálaflokkar og á þinginu eru 15 sæti sem kosið er í til fjögurra ára í senn. Stjórnmálin einkennast af ættarböndum og persónulegum samböndum. Mikilvægasta baráttumál stjórnmálamanna er að berjast gegn loftslagsbreytingum, sem herja í sífellt auknum mæli á eyríkið.

Hagkerfi og viðskipti

Túvalú eru eitt af minnst þróuðu löndum heims, en er þekkt fyrir gott efnhagslíf og jafnvægi í ríkisfjármálum. Eina útflutningsvaran eru þurrkaðar kókoshnetur. Íbúarnir lifa að mestu leyti af fiski og einföldum landbúnaði. Einangruð lega landsins veldur því að fáir ferðamenn heimsækja landið. Stór hluti af innkomu landsins eru peningar sem sendir eru til landsins frá brottfluttum íbúum. Stjórnvöld fá einhverjar tekjur frá sölu af mynt og frímerkjum og fiskikvótum, en landið er háð aðstoð frá Taívan, Japan og Nýja-Sjálandi. Árið 2000 leigði ríkisstjórnin út lén landsins (.tv) til bandarísks fyrirtækis, sem hefur aukið tekjur landsins gríðarlega.

Tölfræði

Á þessari síðu er gildi fyrir landið Túvalú fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir

Atvinna

Atvinnuleysi

Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.

Atvinnuleysi

Fátækt

Verg landsframleiðsla (VLF) á mann

Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti

2

5 421

VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Túvalú

Tölfræði um VLF í PPP

Lífskjör

Túvalú er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.

HDI - Lífskjaralisti Sþ

Hungur

Hlutfall íbúa sem eru vannærðir

Tölfræði - vannæring

Heilsa

Drykkjarvatn

Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni

9 0 0 0 0 0 0 0 0 0

0,9

af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Túvalú

Tölfræði um drykkjarvatn

Bóluefni

Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum

10 10 10 10 10 10 10 10 10 3

9,3

af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Túvalú

Tölfræði um bólusetningar gegn mislingum

Jafnrétti

Kynjamismunun

Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.

GII - vísitala um kynjamismunun

Loftslag

Vistfræðileg fótspor

Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Túvalú, þá þyrftum við jarðar.

Vistfræðileg fótspor

CO2-losun

Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar

6

0,60

fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Túvalú

Tölfræði um losun koltvísýrings á íbúa

Mannfjöldi

Íbúar

11 396

Fólksfjöldi Túvalú

Fólksfjöldi

Fæðingartíðni

Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast

10 10 10 1

3,1

Fæðingartíðni Túvalú

Fæðingartíðni

Barnadauði

Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21

21

af hverjum 1000 börnum sem fæðast Túvalú

Barnadauði

Menntun

Læsi og skrifleg færni

Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi

Tölfræði um ólæsi

Kort af Túvalú