Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 12 671 PPP$ |
Landafræði
Stærsti hluti landsins er sléttlendi sem er að meðaltali 175 metra yfir sjávarmáli. Hins vegar má nefna fjöllin á Krímskaga og lengst í vestri teygir Úkraína sig yfir að syðri hluta Karpatafjalla. Hæsta fjall landsins, Hoverla, tilheyrir Karpatafjöllum. Margar ár renna á sléttlendinu og þeirra stærst er áin Dnepr sem rennur til suðurs út í Svartahaf og skiptir landinu í tvennt.
Temprað meginlandsloftslag er í Úkraínu fyrir utan syðsta hluta Krímskagans þar sem er Miðjarðarhafsloftslag.
Helstu umhverfisvandamál í landinu má rekja til rýrnunar á vatnsgæðum, mengunar og skógarhöggs. Mengun frá iðnaði, mikil notkun á skordýraeitri og geislavirkt ofanfall eftir Tsjernobyl-slysið hefur haft áhrif á stóran hluta landsins. Mengunarstigið hefur minnkað eftir fall kommúnismans vegna þess að dregið hefur úr iðnaðarframleiðslu.
Saga
Saga Úkraínu nær aftur til ársins 4.500 fyrir krist og hafa ólíkir hópar búið á því svæði sem í dag er Úkraína. Kænugarður var undirstaða á þessu austurevrópska svæði í kringum 880 og tengdist sköpun úkraínskrar og rússneskrar sjálfsmyndar. Ríkið leystist upp í kringum 1200 þegar Mongólar réðust inn í landið. Litháar og Pólverjar ráku þá til baka um öld síðar. Pólverjar tóku við stjórn stórs hluta svæðisins við bandalag Pólverja og Litháa árið 1569.
Úkraínskir kósakkar gerðu uppreisn sem varð til þess að hluti Úkraínu féll undir rússneska stjórn og í lok 17. aldar varð svæðið undir bæði rússneskri og austurrískri stjórn. Æ fleiri vildu að Úkraína hlyti sjálfstæði og það var svo í kjölfar fyrri heimsstyrjaldarinnar og byltingarinnar í Rússlandi sem landið lýsti yfir sjálfstæði. Vesturhluti landsins var hins vegar innlimaður í Pólland eftir þriggja ára ára átök og borgarastríð og mið- og austurhluti landsins voru innlimaðir í Sovétríkin árið 1922.
Samyrkjubúskapur var innleiddur með valdi í landinu eftir að Stalín komst til valda. Menningarleg og pólisk elíta Úkraínu var einnig send á flótta.
Hungursneyð af mannavöldum leiddi á milli þriggja til sjö milljóna manna til dauða á árunum 1932-1933, auk þess sem fjöldi landsmanna lét lífið í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að á milli sjö og átta milljón manns hafi látið lífið í styrjöldinni og þar af um ein milljón Gyðinga.
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Úkraína
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Úkraína, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Úkraína varð sjálfstæð við fall Sovétríkjanna árið 1991. Forsetinn, sem er æðsti yfirmaður ríkisins og kosinn á fimm ára fresti, getur setið í tvö kjörtímabil. Þingið er með deild þar sem sitja 450 þingmenn og eru þingkosningar einnig á fimm ára fresti.
Mikið hefur gengið á í stjórnmálum landsins frá sjálfstæði. Ásakanir um svind í forsetakosningum árið 2004 leiddu til pólitískrar kreppu sem kölluð hefur verið appelsínugula byltingin. Pólitíkin í landinu hefur einkennst af baráttu um tenginguna við Rússland annars vegar og hins vegar frjálsræði í efnahagsmálum. Svæðisbundin spenna hefur líka verið mikil og hefur traust til hins pólitíska kerfis veikst m.a. vegna misnotkunar valds.
Deilan um hvort Úkraína ætti að halla sér að Rússlandi eða taka upp samstarf við Evrópusambandið varð tilefni mikilla mótmæla í hluta landsins árið 2014 (en stjórnin ákvað árið 2013 að hætta samningaviðræðum við Evrópusambandið sem staðið hafa árum saman). Viktor Janúkóvitsh, forseti landsins sem hefur verið vinhallur Rússum, hraktist frá völdum og tilkynnt var að forsetakosningar yrðu haldnar í maí 2014. Stuttu seinna streymdu rússneskir hermenn inn á Krímskaga þar sem Rússar eru með herstöð og margir af rússnesku þjóðerni búa. Eftir þjóðaratkvæðagreiðslu á Krímskaga í marsmánuði árið 2014 ákváðu stjórnvöld þar að biðja um að svæðið yrði hluti af Rússlandi. Degi síðar samþykktu rússnesk stjórnvöld þá beiðni. Rússland er eina ríkið sem hefur viðurkennt réttmæti þjóðaratkvæðagreiðslunnar og flutning Krímskagans til Rússlands. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt Rússland fyrir brot á réttindum íbúa en reynir að hindra með diplómatískum leiðum að stríð brjótist út á milli Úkraínu og Rússlands.
Lífskjör
Gögn vantar
Úkraína er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Úkraína var mjög mikilvæg fyrir hagkerfi Sovétríkjanna. Framleiðsla málma og jarðefna skiptir miklu máli í hagkerfi landsins fyrir utan landbúnað. Útflutningur samanstendur aðallega af stáli, kol, vélum og landbúnaðarafurðum. Hagkerfið hefur aukist síðustu ár en heimskreppan hafði þó haft áhrif þar á.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Úkraína fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
1,0
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Úkraína
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
12 671
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Úkraína
Lífskjör
Gögn vantar
Úkraína er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
Gögn vantar
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
8,8
af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Úkraína
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
8,8
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Úkraína
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,200
GII-vísitala í Úkraína
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Úkraína
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Úkraína, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
3,75
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Úkraína
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Úkraína
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
1,3
Fæðingartíðni Úkraína
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
8
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Úkraína
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
10,0
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Úkraína