Fáni
Helstu tölur og staðreyndir
Verg landsframleiðsla á hvern íbúa: | 13 457 PPP$ |
Landafræði
Í Víetnam er stórbrotið landslag sem teygir sig yfir 1600 kílómetra frá norðri til suðurs. Í landinu er aðallega hitabeltisloftslag, sem er í samræmi við og fylgir Monsoon tímabilinu annars staðar í Asíu. Þrátt fyrir legu landsins er talsverður breytileiki á loftslagi og veðurfari. Í suðri er hitastigið hátt árið um kring en í norðri geta veturnir orðið mjög kaldir. Að minnsta kosti þrír fjórðuhlutar landsins eru fjöll eða hæðir og er Víetnam þekkt fyrir kalksteinsfjöll sem rísa hátt yfir hafið. Grænir hrísgrjónaakrar eru einnig einkennandi fyrir landið, sem og óshólmar Mekong-svæðisins, en þar má finna ótal ár og skurði sem renna í gegnum landið. Árnar á Mekong-svæðinu eru forsenda fyrir lífi og búsetu þar, en íbúum hefur þó einnig staðið ógn af þeim. Þær flæða ítrekað yfir bakka sína og má þá sérstaklega nefna Rauðuá í norðri í því samhengi. Talsverða mengun má finna í ánum og er hún helst rakin til notkun skordýraeiturs og áburðar í landbúnaði. Landbúnaðurinn stendur nú frammi fyrir ýmsum umhverfisvandamálum, svo sem landeyðingu vegna skógarhöggs og mikils saltmagns í óshólmunum.
Saga
Víetnam var hérað í Kína í meira en árþúsund. Á 10. öld tókst Víetnömum að brjótast undan stjórn Kínverja og stofnuðu eigið ríki í kjölfarið. Sjálfstæðisbaráttan gekk þó ekki átakalaust því Víetnam hefur oft þurft að þola árásir bæði Kínverja og Mongóla. Undir lok 19. aldar öðluðust Frakkar sífellt meiri völd á svæðinu og að lokum varð Víetnam að franskri nýlendu. Frá árinu 1946 til 1954 börðust Víetnamar við Frakka um sjálfstæði sitt. Að lokum var Víetnam deilt í tvö ríki, norðurhlutinn var gerður að sósíalistaríki og suðurhlutinn að and-kommúnísku ríki. Það síðarnefnda fékk mikinn stuðning frá Bandaríkjamönnum í því sem við þekkjum sem Víetnamstríðið en Víetnamar kalla bandaríska stríðið. Í stríðinu reyndu Bandaríkin og Suður-Víetnam að hindra Norður-Víetnam í því að sameina landið undir stjórn kommúnista, en sú tilraun mistókst. Stríðið stóð frá 1957 til 1975, en þá féll höfuðborgin Saigon og ríkin tvö sameinuðust aftur, nú undir nafninu „Sósíalíska lýðveldið Víetnam“. Víetnamstríðið og þau grimmdarverk sem þar voru framin gegn almennum borgurum höfðu áhrif á allan heiminn. Það er talið að allt að fimm milljónir almennra borgara hafi látið lífið og að minnsta kosti 1.4 milljónir hermanna, en einungis 6% af þeim voru Bandaríkjamenn.
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Víetnam
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Víetnam, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporSamfélag og stjórnmál
Í Víetnam er forsetinn kosinn af þinginu sjálfu til fimm ára í senn, en einungis þingmenn eiga kost á að verða kosnir til forsetaembættisins. Forsetinn er bæði þjóðhöfðingi og æðsti yfirmaður hersins. Víetnam er einsflokksríki undir stjórn Kommúnistaflokksins, sem enn í dag er oft gagnrýndur fyrir brot á mannréttindum. Gagnrýni er þó ekki liðin í landinu og sitja margir í fangelsum vegna andstöðu sinnar við stjórnina. Árið 2006 var Mguyen Minh Triet kosinn forseti, en hann var eitt sinn óbreyttur stærðfræðikennari í Saigon og hóf hann störf sín fyrir flokkinn 1963. Síðan 1986 hefur stjórnin staðið fyrir miklum umbótum í landinu, meðal annars innan hins opinbera, einkum réttarkerfisins og menntakerfisins. Umbæturnar hafa leitt til þess að sá fjöldi fólks sem lifir undir fátæktarmörkum hefur minnkað gífurlega. Einkavæðing landbúnaðarins og stærra vægi einkageirans innan hagkerfisins hafa einnig hjálpað mikið til.
Lífskjör
Gögn vantar
Víetnam er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHagkerfi og viðskipti
Meira en helmingur Víetnama starfar við grunnatvinnuvegi þjóðarinnar. Víetnam er í grunninn landbúnaðarsamfélag þar sem mestöll starfsemin fer fram í kringum óshólmana og nærliggjandi svæði í norðri og suðri. Landbúnaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í útflutningstekjum landsins, en svo dæmi sé tekið er Víetnam stærsti útflytjandi hrísgrjóna í heiminum. Á 10. áratug síðustu aldar varð landið einnig leiðandi í framleiðslu á kaffi og kasjúhnetum. Áður var Víetnam talið vera eitt fátækasta ríki heims en það virðist vera að breytast. Hagkerfið er að breytast úr skipulögðu hagkerfi að hætti kommúnista yfir í sósíalískt markaðshagkerfi. Hagvöxtur hefur verið um 7,5% í landinu síðustu tuttugu árin vegna umbótanna.
Tölfræði
Á þessari síðu er gildi fyrir landið Víetnam fyrir allar mælistikur (frá því ári sem síðast barst). Þú getur auðveldlega borið þessi gildi saman við gildi frá öðru ríki. Sjá vísir
Atvinna
Atvinnuleysi
Hlutfall þeirra sem geta unnið en hafa ekki vinnu.
0,2
af hverjum 10 sem geta unnið eru atvinnulausir Víetnam
Fátækt
Verg landsframleiðsla (VLF) á mann
Hér hefur landsframleiðslu verið skipt jafnt milli íbúa landanna og leiðrétt fyrir kaupmætti
13 457
VLF á hvern íbúa, sett fram í PPP-dollurum Víetnam
Lífskjör
Gögn vantar
Víetnam er númer af löndum á lífskjaralista SÞ (HDI) yfir mannlega þróun.
HDI - Lífskjaralisti SþHungur
Hlutfall íbúa sem eru vannærðir
0,7
Hlutfall vannærðra íbúa Víetnam
Heilsa
Drykkjarvatn
Hlutfall íbúa sem hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
5,8
af hverjum 10 íbúum hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni Víetnam
Bóluefni
Hlutfall barna sem eru bólusett fyrir mislingum
8,9
af hverjum 10 börnum eru bólusett fyrir mislingum Víetnam
Jafnrétti
Kynjamismunun
Kynjamismunun á sviðum heilsu, aðkomu að mikilvægum ákvarðanatökum og atvinnuþátttöku.
0,296
GII-vísitala í Víetnam
Loftslag
Vistfræðileg fótspor
1,4
jarðarkúlur Víetnam
Ef hver einasta manneskja á jörðinni ætti að hafa sömu neyslu og meðalmannfjöldi í Víetnam, þá þyrftum við 1,4 jarðar.
Vistfræðileg fótsporCO2-losun
Fjöldi tonna koltvísýrings sem hver íbúi losar
3,68
fjöldi tonna af koltvísýringi sem hver íbúi losar Víetnam
Mannfjöldi
Íbúar
Fólksfjöldi Víetnam
Fæðingartíðni
Meðalfjöldi barna sem hver kona eignast
1,9
Fæðingartíðni Víetnam
Barnadauði
Meðalfjöldi barna sem deyja áður en þau ná fimm ára aldri, miðað við hver 1000 fædd börn
21
af hverjum 1000 börnum sem fæðast Víetnam
Menntun
Læsi og skrifleg færni
Hlutfall íbúa, 15 ára og eldri, sem eru læs og skrifandi
9,6
af hverjum 10 íbúum yfir 15 ára eru læs og skrifandi Víetnam